„Við þurfum að vera vel fjármögnuð, skipulögð og samstillt“

Heim / Fréttir / „Við þurfum að vera vel fjármögnuð, skipulögð og samstillt“

Sima Sami Bahous, framkvæmdastýra UN Women.

„Um allan heim hafa andfeminískar hreyfingar hlotið hljómgrunn og  þannig tekist að hafa áhrif á æðstu stofnanir og ákvarðanatöku um réttindi kvenna. Þetta nærir ójöfnuð og útilokun sem leiða til afturfarar. Þið megið vera viss um það að þessi andfeminísku öfl eru vel fjármögnuð og vel skipulög og samstills. Við þurfum því einnig að vera vel fjármögnuð, skipulögð og samstillt til að vinna gegn þessu bakslagi,“ sagði Sima Sami Bahous, framkvæmdastýra UN Women, á viðburðinum „Moving Forward: Partnership for an Equal World“, sem UN Women á Íslandi stóð fyrir í morgun. Bahous var heiðursgestur viðburðarins, sem fór  fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands fimmtudaginn 10. nóvember, klukkan 10:00.

Einstakur viðburður

Sem framkvæmdastýra UN Women, er Bahous ein af hæstráðendum stofnana Sameinuðu þjóðanna. Því var um að ræða einstakt tækifæri til að heyra frá fyrstu hendi um stöðu mála og áherslur UN Women á heimsvísu.

Í erindi sínu ræddi Bahous einnig mikilvægi samstarfs UN Women við Ísland og hvatti til áframhaldandi samstarfs í þágu jafnréttismála. „Samstörf eru lykillinn að því að ná kynjajafnrétti. Við þurfum öll að vinna saman – stjórnvöld, félagasamtök, fræðafólk og einkageirinn – svo hægt sé að tryggja jafnari framtíð fyrir öll.“ Sima Bahous þakkaði Íslendingum sérstaklega fyrir þeirra ómetanlega framlag í þágu jafnréttis og UN Women.

Forsetafrú Íslands, Eliza Reid, setti viðburðinn og í kjölfar erindis Bahous fóru fram áhugaverðar pallborðsumræður þar sem þátttakendur í pallborði ræddu stöðu jafnréttis og mikilvægi samvinnu til að sporna gegn því bakslagi sem orðið hefur í jafnréttismálum á síðastliðnum árum.

Þátttakendur í viðburði UN Women á Íslandi. F.v. Stella Samúelsdóttir, Þorsteinn Víglundsson, Askur Hannesson, Birna Einarsdóttir, Eliza Reid, Sima Bahous, Andrés Ingi Jónsson, Tatjana Latinovic, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steinunn Gestsdóttir. Mynd/Kristinn

Þátttakendur í pallborði voru Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi ráðherra, Andrés Ingi Jónsson þingmaður, Tatjana Latinovic, formaður kvenréttindafélags Íslands, Askur Hannesson meðlimur Ungmennaráðs UN Women á Íslandi, og Steinunn Gestsdóttir aðstoðarrektor Háskóla Íslands. Umræðustjóri var Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi ráðherra.

Related Posts