Nú er árið 2021 senn á enda. Eitt af hlutverkum okkar hjá UN Women er að benda hvar hallar helst á réttindi kvenna og hvernig megi betur fara. Nauðsynlegt er þó að fagna þeim sigrum sem unnist hafa í jafnréttismálum á árinu.
Konur komust víða í hæstu valdastöður ríkja í fyrsta sinn
Átta þjóðir kusu á árinu í fyrsta sinn konu sem forsætisráðherra og/eða forseta. Kaja Kallas var kosin í
janúar forsætisráðherra Eistlands, Samia Suluhu Hassan varð Forseti Tansaníu í mars. Fiamē Naomi Mata´afa varð forsætisráðherra Samóa og í júní Robinah Nabbanja forsætisráðherra Úganda. Í september varð Najla Bouden Rmadhane forsætisráðherra Túnis, fyrst kvenna til að gegna þeirra stöðu innan Arabaríkjanna og eftir að Barbados öðlaðist sjálfstæði á ný var Sandra Mason kosin forseti í október síðastliðinn. Magdalena Andersson var kjörin forsætisráðherra Svíþjóðar í nóvember og nú fyrr í mánuðnum var Xiomara Castro kjörin forseti Honduras. Árið var víða gott fyrir konur í stjórnmálum; 70% ríkisstjórnar Albaníu eru konur, kynjajöfn ríkisstjórn náðist í fyrsta sinn í Þýskalandi, Írak og Kosovo héldu áfram að beita kynjakvótum á þingi og Kamala Harris var fyrst kvenna kjörin varaforseti BNA.
Ngozi Okonjo-Iweala varð einnig fyrst kvenna á árinu til að leiða Alþjóðaviðskiptastofnunina (World Trade Organisation). Þar með varð hún fyrst manneskjan frá Afríku til að leiða stofnunina auk þess að vera fyrsta konan. Okonjo-Iweala var þó ekki að mölbrjóta glerþakið í fyrsta sinn því hún var bæði fyrsta konan til að gegna embætti bæði fjármálaráðherra og utanríkisráðherra Nígeríu.
Réttindi og lög voru víða bætt í hag kvenna og samkynhneigðra
Á Spáni var lagafrumvarp samþykkt þess efnis að kynlíf án samþykkis væri alltaf skilgreint sem nauðgun, með frumvarpinu er ætlun að sýna þolendamiðaða nálgun og herða refsingar gerenda. Með þessari samþykkt gengur Spánn í hóp 11 annarra Evrópuríkja sem hafa útvíkkað skilgreiningu á nauðgun á þennan hátt.
Líbanon tók eitt skref áfram í baráttunni gegn þvinguðum barnahjónaböndum. Samþykkt var
lagabreyting á árinu sem kveður á um bann við því að gifta börn undir 15 ára aldri og sett eru um leið skilyrði um að stúlkur verði að gefa leyfi, ef ekki verði hjónabandinu rift. Áður en Covid-19 faraldurinn hófst var búist við að yfir 100 milljónir stúlkna myndu verða þvingaðar í hjónaband fyrir 18 ára aldur næsta áratuginn. Eftir heimsfaraldurinn má búast við að stúlkum í áhættuhópi muni fjölga um tíu milljónir um allan heim.
Í september var stórt skref tekið í Sviss þegar hjónabönd samkynhneigðra voru lögleidd, í desember tók Chile sama skref og varð þar með land númer 31 í heiminum sem tekur þetta jafnréttisskref. Enn eru þó 69 ríki í heiminum þar sem samkynhneigð er refsiverð samkvæmt lögum.
Konur leiddu rannsóknir og viðbrögð við Covid-19 faraldrinum
Sem heilbrigðis- og umönnunarstarfsfólk hafa konur og stúlkur verið í fremstu víglínu viðbragða við faraldrinum. En konur hafa einnig verið leiðandi í rannsóknum og nýsköpun í tengslum við Covid-19. Allt árið jókst dreifing á bóluefni, þökk sé mörgum konum sem rutt hafa brautina sem vísindakonur og sérfræðingar. Þessar konur hafa verið leiðandi í baráttunni gegn faraldrinum við þróun bólefna; Sarah Gilbert, prófessor í bóluefnafræðum við Oxford háskóla, Devi Sridhar, professor við Edinborgarháskóla, Dr. Soumya Swaminathan hjá WHO, Özlem Turechi, annar stofnandi BioNTech) við þróun bólefna. Neema Kaseje, barnaskurðlæknir í Kenýa hefur beitt sér við að fletja út Covid kúrfuna í Kenýa.
Ný stefna Nasdaq, áskilur fyrirtæki skráð í kauphöll að tryggja a.m.k. eina konu í stjórn skráðs fyrirtækis í kauphöll. Nýlega kom í ljós að 75% Nasdaq fyrirtækja, sérstaklega tæknifyrirtæki, náðu ekki þessum markmiðum.
Skástu Ólympíuleikar til þessa – hvað varðar kynjahalla
Næstum 49% keppenda á Ólympíuleikunum í Tókýó 2021 voru konur. Það eru kynjajöfnustu Ólympíuleikar sem haldnir hafa verið til þessa.
Kvenleikstjórar fá loks aukna viðurkenningu
Kínverska kvikmyndagerðarkonan og leikstjórinn, Chloé Zhao skráði sig í sögubækurnar er hún varð
önnur konan til að fá Óskarsverðlaun sem besti leikstjóri. Þar að auki er hún fyrst kvenna af asískum uppruna til að hljóta þau verðlaun. Var þetta í fyrsta sinn sem tvær konur er tilnefndar sem bestu leikstjórar í 93 ára sögu Óskarsverðlaunanna.
LEGO tilkynnti á árinu að leikfangarisinn myndi hætta kynjaflokkun á Lego leikföngum. Þar með afnema merkingar á Lego kössum sem segja “Fyrir stráka”, “Fyrir stelpur”. Þó fyrr hefði verið.
Blásið var formlega til alheimsátaksins fyrir jöfnum heimi,
Kynslóð Jafnréttis (Generation Equality). Átakið hófst í Mexíkó í mars og það staðfest í júlí í París. Í átakinu eru ríkisstjórnir, alþjóðastofnanir, sveitafélög, einkafyrirtæki og félagasamtök leidd saman að borðinu í fimm ára jafnréttisvegferð. Í átakinu hafa safnast um 40 milljarðar bandaríkjadala, sem segja má að séu hæstu fjárhæðir sem safnast hafa saman í þennan fjársvelta málaflott, jafnrétti, á einu bretti.
Maria Ressa, ásamt Dmitry Muratov, hlaut Nóbelsverðlaun 2021 fyrir að standa vörð um tjáningarfrelsið. Ressa, er meðstofnandi rannsóknarblaðamennsku fyrirtæki á Filippseyjum og hefur ótrauð barist fyrir tjáningarfrelsi.
Afganskar konur sýnaóþrjótandi kraft
Valdataka Talíbana í Afganistan 15. ágúst síðastliðinn hefur haft ómæld áhrif á íbúa landsins og var grundvallarmannréttindi kvenna og stúlkna hrifsuð af þeim á augabragði. Stúlkum er bannað að ganga í skóla, konum er meinað að vinna og ofbeldi gegn konum og stúlkum eykst með hverjum deginum. Þrátt fyrir allt, mótmæla konur í Afganistan á götum úti. Ein sendisveit afganskra kvenna hélt til New York og tók þátt í umræðum Öryggisráðs SÞ um konur, frið og öryggi þar sem þær héldu garfalvarlegri stöðu
kvenna og stúlkna í Afganistan á lofti. Þær kölluðu eftir fullri og jafnri þátttöku kvenna í friðarumleitunum, við stjórnvölinn og að tryggja þurfi kvenmiðaða neyðaraðstoð.
Höldum jafnréttissigrunum á lofti en gleymum ekki konum í Afganistan og höldum ótrauð áfram baráttunni á árinu 2022.
UN Women á Íslandi óskar ykkur gleði og farsældar á komandi ári.
Takk fyrir ómetanlegan stuðning á árinu!

