fbpx

Öruggir markaðir á Fiji

Heim / Dæmisögur / Öruggir markaðir á Fiji

Starfskonur UN Women á Íslandi heimsóttu Fiji á dögunum og kynntu sér mögnuð verkefni UN Women sem valdefla efnahagslega og bjarga lífum kvenna og stúlkna á Fiji.

Í Suður-Kyrrahafi mælist ofbeldi gegn konum og stúlkum með því hæsta í heiminum en 68% kvenna hafa verið beittar líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi á lífsleiðinni. Í gegnum tíðina hafa fyrir fram mótaðar hugmyndir um hlutverk kynjanna haldið aftur af konum við að taka virkan þátt á vinnumarkaði. Kynhlutverk og staða aftrar konum við að láta til sín taka utan heimilisins, þeim hefur reynst erfitt að fá hljómgrunn og hafa takmarkað vald til ákvarðanataka bæði innan heimilisins sem og utan þess.

Susanna

Susanna er ein þeirra kvenna sem hefur notið góðs af verkefni UN Women á sölumarkaðnum í Rakiraki á Fiji: „Alla mína ævi hef ég byggt sjálfsmynd mína á því að vera eiginkona og móðir. Ég var ekki alin upp í þeirri trú að ég gæti verið leiðtogi. Þetta er svo sannarlega ný áskorun fyrir mig að tala máli kvenna og berjast fyrir réttindum okkar. Ég er svo þakklát UN Women fyrir að veita mér þetta sjálfstraust og trú á eigin hæfileika og getu. Það er ómetanlegt að fá verkfæri til að bæta vinnuaðstæður og standa vörð um öryggi og hagsmuni sölukvennanna hér á mörkuðunum.“

Á bilinu 75-90% söluaðila á mörkuðum á Suður-Kyrrahafseyjum eru konur. Þær vinna langa daga og fá lág laun við slæmar vinnuaðstæður. Þrátt fyrir að mynda meirihluta seljenda á mörkuðum er þeim haldið utan við ákvarðanatökur og stjórnun markaðanna. Suður-Kyrrahafseyjar eru 330 talsins og líkt og gefur að skilja eru samgöngur flóknari í ljósi fjölda eyjanna. Um 80% íbúa eyjanna búa í dreifbýli og hafa fyrst og fremst lífsviðurværi af landbúnaði, fiskveiði og ræktun.  Ræktun og fiskveiði af landi er fyrst og fremst á herðum kvenna auk þess sem umönnunar- og heimilisstörf eru alfarið unnin af konum. Síðast en ekki síst eru konur í flestum tilfellum þær sem selja afurðir á mörkuðum í þéttbýli.

UN Women er á staðnum og bregst við ranglætinu með verkefni sem nefnist Markets 4 change. Verkefnið er starfrækt á Fiji, Salómonseyjum og Vanuatu í Suður-Kyrrahafi og miðar að því að valdefla konur efnahagslega við störf sín á sölumörkuðum. Stofnað hefur verið markaðsráð þar sem konur eru í fararbroddi, þannig er konum veitt ákvörðunarvald um vinnustaðinn, þær greina þarfir sínar og UN Women tryggir að tekið sé mið af þeim þörfum. Í kjölfarið hefur öryggi kvenna verið bætt á mörkuðum með einföldum en áhrifaríkum lausnum eins og fjölga salernum kvenna, sölubásum er stillt þannig að konur snúi aldrei bak í viðskiptavini markaðanna auk þess sem útbúin hafa verið örugg svefnpláss fyrir sölukonur sem koma langt að sem kemur í veg fyrir ofbeldi og þjófnaði. Síðast en ekki síst veitir UN Women konum leiðtogaþjálfun og námskeið í fjármálalæsi, rekstri og stjórnun.

Með því að styðja við starf UN Women tekur þú átt í að valdefla konur efnahagslega og veita þeim  sjálfstraust til að hafa jákvæð áhrif á eigin líf og samfélagið í heild sinni.

Myndir: UN Women/ Sarika Chand og Marta Goðadóttir

Related Posts