Hlutverk UN Women aldrei mikilvægara, segir Sima Bahous

Heim / Fréttir / Hlutverk UN Women aldrei mikilvægara, segir Sima Bahous

Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women, ávarpar fundinn. UN Women/Ryan Brown

Framkvæmdastjórn UN Women fundaði þann 9. september í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women, flutti ræðu á fundinum og fór þar yfir árangur starfs UN Women á heimsvísu og áskoranirnar sem stofnunin stendur frammi fyrir í heimi þar sem fleiri vopnuð átök geisa en nokkru sinni áður og loftslagsbreytingar hrekja enn fleira fólk á flótta. Hún minnti aðildarríki á mikilvægi umboðs UN Women og sagði það aldrei hafa átt jafn mikið við og einmitt í dag.

Bahous nefndi að geópólitísk spenna, niðurskurður til alþjóðasamstarfs og aukið álag á stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafi sett mark sitt á starfsemi UN Women undanfarin ár. Á sama tíma hefur þörfin á mannúðaraðstoð stóraukist vegna aukinna átaka, loftslagsbreytinga og bakslagsins í mannréttindum. Hún nefnir að kvenrekin félagasamtök sem starfa með UN Women mæti vaxandi þörfum fólks um leið og dregið hefur úr fjármagni til þeirra. Í þessu samhengi nefnir Bahous stöðu kvenna í Afganistan og segir alþjóðasamfélagið hafa brugðist afgönskum konum. Hún segir UN Women forgangsraða starfi sínu með kvenreknum félagasamtökum í Afganistan á tímum þar sem nánast er búið að afmá konur úr daglegu lífi með grimmilegum reglugerðum. Hún fjallaði einnig um stöðu kvenna í Súdan og Haítí, sem lifa í stöðugri ógn um kynferðislegt ofbeldi.

„Við erum staðsett í Líbanon, Mjanmar, Úkraínu og þeim 103 ríkjum þar sem UN Women starfar og veitum stuðning til kvenna og stúlkna. Það er okkar hlutverk,“ sagði hún í ræðu sinni.

 

Bahous fór jafnframt yfir árangur starfs UN Women og sagði niðurstöðurnar sýna fram á mikilvægi þess þríþætta umboðs sem UN Women hefur. Hið þríþætta umboð (e. Triple mandate) sem UN Women hefur hverfist um að:

  • Móta staðla um jafnrétti sem aðildarríki vinna eftir
  • Vinna með aðildarríkjum og hagaðilum að því að breyta fyrirheitum í raunverulegar aðgerðir
  • Virkja allar stofnanir Sameinuðu þjóðanna í að efla aðgerðir í þágu jafnréttis

Þrátt fyrir þetta, sagði Bahous, er framgangur jafnréttis alltof hægur og tekur hún fram að framfarir í þágu jafnréttis eigi ekki aðeins að vera hlutverk og markmið UN Women.

Hægt er að lesa yfirlýsingu framkvæmdastýru UN Women, Simu Bahous, í heild sinni hér.

 

Related Posts