Fimm árum eftir valdatöku talíbana er útilokun kvenna nýtt norm

Heim / Fréttir / Fimm árum eftir valdatöku talíbana er útilokun kvenna nýtt norm
Zahra Rahmaty frá Afganistan

Zahra Rahmaty* frá Afganistan. Mynd: UN Women/Sayed Habib Bidell.

Nýjar upplýsingar frá UN Women sýna að helmingur afganskra kvenna fer ekki út af heimili sínu nema einu sinni til tvisvar í mánuði vegna takmarkana á frelsi þeirra.

Á þeim fimm árum sem liðin eru frá valdatöku talíbana í Afganistan hafa öll grundvallarmannréttindi kvenna og stúlkna verið afnumin. Aðfarirnar að réttindum þeirra eiga sér enga hliðstæðu í heiminum.

Frá valdatökunni hefur talíbanastjórnin gefið út yfir 100 tilskipanir sem beinast gegn konum og stúlkum, festa í sessi mismunun og svipta konur og stúlkur mannréttindum sínum. Tilskipanirnar hafa haft djúpstæð áhrif á líf afganskra kvenna og samfélagið í heild. UN Women er skýrt í þeirri afstöðu sinni að heimurinn megi ekki horfa aðgerðarlaus fram hjá þessari fordæmalausu aðför að réttindum kvenna og stúlkna.

Förum yfir stöðuna:

 

Konur eru ekki jafnar fyrir lögum

Nýjar tilskipanir sem gefnar voru út á þessu ári takmarka enn frekar lagaleg réttindi kvenna og stúlkna í Afganistan. Tilskipun númer 12 afnam sem dæmi rétt kvenna í hjúskap og skerti lagalega vernd þeirra. Samkvæmt tilskipun númer 12 er ofbeldi í hjónabandi ekki lengur refsivert, ekki nema það valdi konunni gríðarlegum líkamlegum skaða. Tilskipun númer 18 festi í lög rétt karlmanna til að neita konu um hjónaskilnað. Tilskipunin afnam einnig lagaákvæði er banna barnahjónabönd.

 

Heilsu kvenna hrakar

Takmarkanir á frelsi afganskra kvenna hafa haft gríðarlega neikvæð áhrif á andlega heilsu þeirra. Þær hafa verið sviptar tækifærum og framtíðardraumum sínum, hafa ekki aðgang að líkamlegri hreyfingu né samskiptum við annað fólk en nánustu fjölskyldumeðlimi. Konur og stúlkur lýsa miklum kvíða, uppgjöf og vonleysi. Í skýrslu frá UN Women kemur í ljós að 7 af hverjum 10 konum meta andlega heilsu sína sem „slæma“ eða „mjög slæma“.

Aðgengi kvenna að heilbrigðisþjónustu er einnig verulega skert, m.a. vegna takmarkana á ferðafrelsi þeirra. Skortur er á hjúkrunarfræðingum og kvenkyns læknum vegna banns á atvinnuþátttöku kvenna. Afganistan er nú það ríki heims þar sem tíðni mæðradauða er hvað hæst, hann var áætlaður um 638 dauðsföll á hverja 100.000 fæðingar árið 2024.

 

Útilokaðar frá opinberu lífi

Takmarkanir á ferðafrelsi kvenna og aðgengi þeirra að opinberum rýmum jukust árið 2025. Samkvæmt gögnum frá UN Women greindi meira en helmingur kvenna frá því að þær færu út af heimili sínu ekki nema einu sinni eða tvisvar í mánuði eða sjaldnar.

Þriðjungur kvenna greindi frá því að þær upplifðu óöryggi þegar þær fóru út af heimilinu án fylgdar mahram, og meira en helmingur sagðist forðast opinber rými á borð við markaði eða heilbrigðisstofnanir með öllu.

Eftirlit með konum fer vaxandi og er því framfylgt af neti karla og kvenna sem hafa m.a. leyfi til að hneppa konur í varðhald. Þessi utanaðkomandi ógn hefur ýtt undir þann ótta og óöryggi sem margar konur og stúlkur upplifa í sínu daglega lífi.

 

Stúlkur enn ekki fengið að snúa aftur í skóla

Afganistan er eina ríki heims sem hefur sett á algjört bann við skólasókn stúlkna eftir 6. bekk grunnskóla. Stúlkurnar sem sitja heima hefðu margar orðið læknar, ljósmæður, kennarar og hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar. Talið er að bannið muni hafa þær afleiðingar að í lok árs 2030 standi landið frammi fyrir kennaraskorti og skorti á heilbrigðisstarfsfólki. Stúlkur standa frammi fyrir gríðarlegum áskorunum, hafi þær hug á að stunda einhvers konar nám eftir 12 ára aldur.

 

Vöxtur fólks á flótta eykur álag

Samkvæmt upplýsingum SÞ, þurftu meira en 10,7 milljónir afganskra kvenna og stúlkna á neyðaraðstoð að halda árið 2026. Skortur á kvenkyns heilbrigðisstarfsfólki, sem eru þær einu sem mega sinna konum, fæðuóöryggi og verri heilsa kvenna hefur aukið á neyð kvenna og stúlkna í landinu. Þá auka endursendingar fólks, sem dvalið hefur í Pakistan og Íran, álagið á innviði landsins. Færri en ein af hverjum fimm konum sem hafa verið fluttar nauðugar brott frá Íran og Pakistan hafa tök á því að afla sér tekna. Bann talíbanastjórnarinnar við því að konur starfi fyrir alþjóðleg hjálparsamtök hefur einnig gert mannúðarstarf afar flókið.

 

Konur fá ekki að taka þátt í atvinnulífinu

Efnahagsleg þátttaka kvenna í Afganistan er með lægsta móti. Aðeins 7% kvenna eru í starfi, samanborið við 84% karlmanna. Áframhaldandi útilokun kvenna frá atvinnulífinu mun hafa skelfilegar efnahagslegar afleiðingar í för með sér. Talið er að fjárhagslegt tap af þessari ákvörðun hafi numið um 920 milljónum bandaríkjadala yfir tveggja ára tímabil (2024 til 2026).

 

Alþjóðlegur niðurskurður til þróunarmála takmarkar allt viðbragð

Nærri 75% kvenrekinna félagasamtaka í Afganistan glímdu við niðurskurð árið 2025. Helmingur þeirra reiknar með að þurfa að hætta allri starfsemi árið 2026. Kvenrekin félagasamtök eru oft eina líflína kvenna í Afganistan og einu aðilarnir sem geta veitt konum lífsnauðsynlega þjónustu. Þessi félagasamtök reka kvennaathvörf, veita sálræna aðstoð, styðja við framfærslu kvenna og veita aðra mannúðaraðstoð sem hjálparsamtök geta ekki veitt sökum takmarkana.

Hægt er að lesa nánar um stöðuna í Afganistan og starf UN Women hér.

 

Related Posts