Alþjóðlegur dagur mannúðar: Finna styrkinn hjá fólkinu

Heim / Fréttir / Alþjóðlegur dagur mannúðar: Finna styrkinn hjá fólkinu

Araya Arayawuth, svæðisstjóri UN Women í Jalalabad í Afganistan. Mynd/UN Women

Alþjóðlegur dagur mannúðar er í dag, 19. ágúst, og er dagurinn tileinkaður öllu því mannúðarstarfsfólki sem hættir lífi sínu dag hvern við störf sín á hættulegustu svæðum heims.

UN Women veitir neyðaraðstoð til kvenna og stúlkna á átaka- og hamfarasvæðum. Mannúðarstarf UN Women miðast fyrst og fremst að því að veita konum kvenmiða neyðaraðstoð, en stofnunin styður einnig við uppbyggingu að átökum loknum.

Árangur starfsins er ekki alltaf mælanlegur. Oft er árangurinn einungis mældur í voninni sem hægt er að endurvekja meðal þolenda og fiðrildaáhrifunum sem það hefur á börn þeirra og nærsamfélög.

 

Skiptir þetta einhverju máli?

„Skiptir það sem við gerum raunverulega máli í lífi þessara kvenna?“ er spurning sem Safia Elamin, starfskona UN Women í Súdan, spyr sig reglulega. Elamin veitir mannúðaraðstoð í heimalandi sínu, Súdan, þar sem skæð vopnuð átök hafa staðið yfir síðan í apríl 2023. Þetta er einföld spurning, en fyrir þau er starfa við gríðarlega krefjandi aðstæður á hættulegustu svæðum heims, er svarið ekki alltaf einfalt.

Starfsfólk UN Women veitir mannúðaraðstoð til fólks sem býr við vopnuð átök, hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín, hefur orðið fyrir ofbeldi, misst ástvini og býr við gríðarlegt óöryggi. Starfsumhverfið er erfitt og starfsfólk verður að taka erfiðar ákvarðanir undir miklu álagi og leita leiða til að hámarka áhrif þess takmarkaða fjármagns sem það hefur til umráða. Oft hefur mannúðarstarfsfólk sjálft upplifað sömu hörmungar og fólkið sem það þjónar og styður við.

Hægt er að lesa fleiri frásagnir af vettvangi hér. 

 

Erfiðar aðstæður í Afganistan

Á undanförnum árum hafa flóð, jarðskjálftar og önnur náttúruvá riðið yfir flest héruð Afganistan með reglulegu millibili. Á sama tíma hefur talíbanastjórnin svipt afganskar konur og stúlkur öllum grundvallarmannréttindum sínum. Þetta hefur skapað gríðarlega krefjandi starfsumhverfi fyrir UN Women í Afganistan.
Í kjölfar jarðskjálfta að stærð 6,0 er reið yfir Kunar-hérað í september í fyrra, ferðaðist Araya Arayawuth, svæðisstjóri UN Women í Jalalabad í Afganistan, á skjálftasvæðið til að meta aðstæður og veita neyðaraðstoð. Arayawuth segir ferðalagið á vettvang hafa verið langt og gríðarerfitt.

„Jarðskjálftinn átti upptök sín í mjög afskekktum fjalladal. Til að komast þangað þurftum við fyrst að aka eftir þröngum malarvegum, en svo kom að því að ekki var hægt að halda ferðalaginu áfram akandi. Teymið varð því að skilja bílalestina eftir og halda förinni áfram fótgangandi. Við óðum ár, gengum í gegnum kornakra og klifum yfir grjót sem fallið hafði úr klettunum, allt á meðan eftirskjálftar skóku jörðina á 20 mínútna fresti. Eftir nokkurra klukkustunda göngu, komumst við loks á vettvang þar sem við fundum hóp kvenna með börn sín. Þau höfðust við undir tjaldi sem konurnar höfðu búið til úr því sem hendi var næst. Þær höfðu misst allt sitt í skjálftanum og höfðu verið að leita eftir aðstoð í tvo sólarhringa. Þetta braut í mér hjartað,” segir Arayawuth og heldur áfram: „Það sem reynist mér alltaf erfiðast að glíma við eru andlegu sárin. Sérstaklega þegar maður á í svo nánum samskiptum við konur og stúlkur sem þjást og maður veit að það er aðeins svo mikið sem við getum gert til að lina sársauka þeirra með því takmarkaða fjármagni sem við höfum til umráða.“

Arayawuth segir þrautseigju, jákvæðni og styrk kvennanna sem hún hittir vera henni hvatning til að halda starfi sínu áfram og reyna að gera betur og meira.

Lestu nánar um starf UN Women í Afganistan hér.

Býr við neyðarástand en bregst einnig við því

Rebecca starfar hjá UN Women í Mjanmar. Mynd/UN Women

„Mannúðarstarf hverfist í grunninn um að standa með samfélögum á meðan þau ganga í gegnum hörmungar – jafnvel þegar þú ert að ganga í gegnum sömu hörmungar,“ útskýrir Rebecca, sem starfar hjá UN Women í Mjanmar.
Þegar gríðarmikill jarðskjálfti reið yfir Mandalay, heimabæ Rebeccu, í mars 2025 var hún á meðal þess hjálparstarfsfólks sem sent var á vettvang.

Heimili Rebeccu sjálfrar hafði skemmst í skjálftanum og fjölskylda hennar var á vergangi. Á sama tíma hafði hún umsjón með gagnaöflun sem studdi við neyðar- og viðbragðsáætlanir.

Dag hvern sótti hún fundi, heimsótti neyðarskýli og tók þar viðtöl við einstaklinga sem höfðu misst heimili sín í skjálftanum. Á kvöldin vann Rebecca úr gögnunum og ritaði skýrslur svo að viðbragðs- og björgunarteymi gæti betur mætt þörfum fólks.

„Við lok hvers dags var ég algjörlega örmagna. En þrátt fyrir þreytuna gat ég oft ekki sofnað á kvöldin. Sögurnar sem ég hafði heyrt og eyðileggingin sem ég varð vitni að sátu í mér. Það sem gaf mér styrk til að halda vinnunni áfram var vissan um að gagnaöflunin þýddi að þörfum fólks yrði betur mætt. Þetta var eitt erfiðasta tímabil sem ég hef gengið í gegnum á ævi minni en þetta var jafnframt eitt það þýðingarmesta,” segir Rebecca.

Að verða vitni að eyðileggingu og þjáningu fólks en vita að þörfum allra verði ekki mætt sökum fjárskorts er eitt það erfiðasta við mannúðarstarf, að sögn starfsfólks UN Women sem starfar á þeim vettvangi.

Hægt er að styðja starf UN Women hér.

 

Related Posts
Afgönsk kona í skugga