Kvenhatur ekki lengur jaðarorðræða vegna samfélagsmiðla

Heim / Fréttir / Kvenhatur ekki lengur jaðarorðræða vegna samfélagsmiðla

Kvenhatur, samsæriskenningar og hægriöfgastefna teljast ekki lengur til jaðarorðræðu, m.a. vegna samfélagsmiðla og internetsins. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslunni International Men and Gender Equality Survey (IMAGES) sem Equimundo stendur fyrir. Gagna var aflað frá meira en 50 ríkjum um allan heim og sýna niðurstöður að fjöldi karlmanna beitir kynferðislegu, andlegu, fjárhagslegu og líkamlegu ofbeldi til að viðhalda yfirburðastöðu sinni gagnvart konum. Í skýrslunni kemur einnig fram að kynferðislegt ofbeldi er sú tegund kynbundins ofbeldis sem karlmenn eru síst tilbúnir til að viðurkenna að hafa beitt, en töluvert misræmi er á milli þess og frásagna kvenna um kynferðislegt ofbeldi. 

Í skýrslunni er sjónum sérstaklega beint að stafrænu ofbeldi og mannhvelinu og þeirri skaðlegu orðræðu sem þar þrífst. Líkur eru á að hver drengur sem hefur aðgengi að snjalltækjum og samfélagsmiðlum muni hafa séð efni sem byggist á skilaboðum mannhvelsins: skilaboð um mikilvægi efnahagslegs árangurs, looksmaxxing, drottnun yfir konum og stúlkum og hvernig jafnrétti hefur mismunað karlmönnum. 

 

Skoða kynbundið ofbeldi út frá nýjum hliðum

Áherslur rannsókna Equimundo liggja hjá karlmönnum og drengjum, frekar en þolendum kynbundins ofbeldis. Með því, segja samtökin, fæst heildrænni mynd af stöðu mála þar sem einnig er rýnt í gerendur og hvatann að baki kynbundnu ofbeldi en ekki aðeins afleiðingar þess. Þegar horft er til stafræns ofbeldis er meirihluti þolenda konur, stúlkur og hinsegin fólk og meirihluti gerenda er karlmenn og drengir. Í mörgum tilfellum eru drengir þó einnig sjálfir þolendur stafræns ofbeldis; þeir eru beittir þrýstingi til að uppfylla óraunhæfar útlitskröfur, fjárkúgaðir og beittir sálrænni stjórnun.

Gögnin sýna að efnahagsleg staða karlmanna og drengja hefur mikil áhrif á hvort þeir beiti stafrænu ofbeldi, viðhafi skaðlega orðræðu gegn konum og stúlkum og tileinki sér hugmyndafræði hægriöfgaafla. Í mörgum efnameiri ríkjum heims hafa drengir og karlmenn dregist aftur úr þegar horft er til ýmissa efnahagslegra- og félagslegra mælikvarða. Í tveimur þriðju ríkja eru karlmenn ólíklegri til að ljúka framhalds- og háskólanámi en konur. Í hinu hnattræna suðri glíma ungir karlmenn við háa tíðni atvinnuleysis.

 

Gervigreindin eykur hættu á kynbundnu ofbeldi

Skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2024 greindi frá þremur áhættuþáttum sem geta aukið tíðni stafræns kynbundins ofbeldis: aukið bakslag gegn kvenréttindum, hraður uppgangur gervigreindartóla og útbreiðsla mannhvelsins. 

Það sem gerir stafrænt umhverfi flókið og erfitt viðureignar er að það nær þvert yfir landamæri, nafnleysi er viðurkennt, það flæðir á milli miðla og ólíkra lagaramma og normalíserar áreitni. 

Tilfærsla mannhvelsins frá skuggakimum internetsins og inn í meginstrauminn, þar sem algóryþmar samfélagsmiðla dreifa hatursorðræðu til mun stærri hóps en áður, hefur það í för með sér að skaðleg og ofbeldisfull hugmyndafræði sem þreifst áður aðeins innan jaðarhópa, hefur náð dreifingu og augum mun fleira fólks.  

Á meðal áhrifamestu hópa sem fyrirfinnast innan mannhvelsins eru m.a. Réttindasamtök karlmanna sem halda því fram að samfélagið mismuni karlmönnum, „incel”-hópar (e. Involuntary Celibacy) sem telja karlmenn eiga rétt á kynlífi, „men going their own way”-hópar sem tala fyrir því að karlmenn eigi að forðast sambönd með konum, „pick-up artists”, og hópa karlmanna sem fjalla um forsjármál og hjónaskilnaði.

Algóryþmar samfélagsmiðlanna verðlauna efni sem vekur sterk viðbrögð fólks og veitur á borð við YouTube og TikTok deila þannig öfgafullu efni án þess að gera greinarmun á því hvort neytandinn sé fullorðinn einstaklingur eða barn.

Þá kemur fram í skýrslu Equimundo að nokkur samhljómur sé á milli hugmyndafræði mannhvelsins og hægri öfgaafla. Báðir hóparnir líta svo á að konur séu óæðri karlmönnum, hvetja til hefðbundinna kynhlutverka og tala fyrir kjarnafjölskyldunni.

Lestu meira um mannhvelið og skýrslu Equimundo hér.

Related Posts