
Heilbrigðisstarfsfólk sinnir konu og barni í gegnum félagasamtök.
Liðin eru fimm ár frá valdatöku talíbana í Afganistan. Á þeim tíma hafa afganskar konur misst nánast öll grundvallarmannréttindi sín og ekkert lát virðist á þeim takmörkunum sem þær búa við í sínu daglega lífi. Samtímis hefur dregið úr alþjóðlegum fjárveitingum til þróunarmála, þ.m.t. til verkefna í Afganistan, sem eykur enn frekar á neyð kvenna.
Frá valdatökunni hafa kvenrekin félagasamtök í Afganistan að miklu leyti reitt sig á alþjóðlegan fjárstuðning til að fjármagna verkefni. Mörg þeirra berjast nú í bökkum og sjá ekki fram á að geta haldið áfram starfsemi sinni. UN Women hefur stutt fjárhagslega við kvenrekin félagasamtök í landinu. Meðal þeirra félagasamtaka sem hlotið hafa fjárstuðning frá UN Women eru samtök sem starfa í Mið-Afganistan. Umrædd samtök veita þjónustu á borð við læknisþjónustu, sálrænan stuðning, félagslegan stuðning og atvinnu- og verknám svo konur geti aflað sér tekna.
Sjá ekki fyrir sér framtíð
Masoma Haidari* starfar hjá þessum félagasamtökum og segir konur geta sótt til þeirra stuðning sem erfitt er að sækja annars staðar.
„Að meðaltali nýta allt að 400 konur þjónustu okkar í hverri viku. Miðstöðvar sem okkar eru gríðarlega mikilvægar, sérstaklega konum, því hér fá þær hvíld frá kvíðanum sem þær upplifa daglega og stuðning þegar hans er helst þörf,” útskýrir Haidari.
Niðurskurður til þróunarmála þýðir að 60% þeirra kvenna og stúlkna sem reiddu sig á þjónustu félagasamtaka hafa ekki lengur aðgengi að slíkri aðstoð. Náms- og menntunartækifærum hefur fækkað um tvo þriðju þess sem áður var. Verkefnum sem styðja við þolendur kynbundins ofbeldis hefur fækkað um 58 prósent. Í Afganistan eru kvenrekin félagasamtök oft þau einu sem geta enn veitt slíka þjónustu til kvenna og stúlkna. Leggi þau upp laupana sökum fjárskorts mun það hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Haidari segir eftirspurn eftir sálrænni aðstoð hafa aukist samhliða takmörkunum á réttindum kvenna. Hún nefnir sérstaklega bannið á skólagöngu stúlkna og segir það hafa haft sérstaklega slæm áhrif á andlega líðan stúlkna.
„Takmarkanirnar á menntunartækifærum stúlkna, ásamt öllum hinum takmörkununum á réttindum þeirra, hafa það í för með sér að stúlkur hætta að huga að heilsu sinni og hætta að hugsa um framtíðina. Afleiðingarnar eru skelfilegar – þær hætta alfarið að hugsa um andlega og líkamlega heilsu. Streitan og kvíðinn sem þær búa við heldur áfram að stigmagnast og margar eru orðnar mjög þunglyndar.”
Fékk lamandi kvíðaköst
Zahra Rahmaty* er ein þeirra kvenna sem sótt hafa þjónustu til samtakanna sem Haidari starfar hjá. Zahra á fimm börn, þar af fjórar dætur, og býr í Mið-Afganistan. Hún leitaði til samtakanna eftir fjárhagsaðstoð eftir að eiginmaður hennar yfirgaf hana og börnin og kvæntist annarri konu. Vegna takmarkana á atvinnuþátttöku kvenna, reyndist það Zahra þrautinni þyngri að sjá fyrir sér og börnum sínum. Zahra segir eiginmann sinn færa þeim matvæli endrum og sinnum en hún hljóti enga fjárhagsaðstoð frá honum. Aðstæður hennar ollu henni djúpstæðri vanlíðan og kvíða og andlegri heilsu hennar hrakaði hratt.
„Ég fékk mikil kviðköst. Hendur mínar stífnuðu, ég missti mátt og féll í gólfið. Þegar það gerðist var best ef ég var einfaldlega látin vera. Ef einhver reyndi að kalla á mig eða vekja mig þá ágerðust einkennin og kvíðinn og það tók mig allt að þrjár klukkustundir að koma aftur til sjálfrar mín,“ útskýrir Zahra.
Þrír mánuðir eru liðnir frá því að Zahra fékk síðast kvíðakast. Hún vill meina að það sé vegna þess stuðnings sem hún hlaut hjá samtökum Haidari. „Ráðgjöfin og læknisaðstoðin sem ég fékk þar hafa virkilega hjálpað mér og líðan mín er betri. Mér líður miklu betur en áður.“
Vonast til að geta þénað einhverjar tekjur
Zahara var ein af þeim heppnu. Æ færri konur geta sótt þjónustu á borð við þá sem hún fékk vegna þess að félagasamtök á borð við þau sem Haidari starfar hjá, hljóta ekki fjárstuðning. Samtökin sem Haidari vinnur fyrir veita konum ekki aðeins sálrænan stuðning og læknisaðstoð heldur styðja einnig við atvinnutækifæri þeirra. Eftir að atvinnuþátttaka kvenna var skert til muna hafa einstæðar konur þurft að finna nýjar leiðir til atvinnusköpunar og tekjuöflunar. Félagasamtökin sem Haidari starfar hjá halda úti námskeiðum í matvælaframleiðslu; atvinnustarfsemi sem konur geta sinnt að heiman.
Þau verkefni náðu til allt að 300 kvenna, en nú er aðeins hægt að styðja við um 75 konur. Zahra sótti slíkt námskeið og hefur síðan þá geta aflað sér einhverra tekna.
„Ég kunni enga iðn aðra en að verka ull. Í gegnum samtökin lærði ég að búa til gulrótarsultu, sósur og kartöfluflögur sem ég get svo selt á markaðnum. Nú kann ég að framleiða vörurnar, veit hvernig ég get farið með þær á markaðinn og selt í litlu upplagi. Þannig get ég þénað nóg til að kaupa mat handa börnunum,“ segir Zahra.
Hægt er að fræðast frekar um verkefni UN Women í Afganistan hér.
*Nöfnum kvennanna hefur verið breytt til að vernda þær.

