160.000 konur fyrir áhrifum af völdum hamfaraflóðs í Nepal

Heim / Fréttir / 160.000 konur fyrir áhrifum af völdum hamfaraflóðs í Nepal

Starfskona UN Women í Nepal á hamfarasvæðinu.

Talið er að um 157.050 konur og stúlkur búsettar á Rasuwa og Nuwakot-héruðum í Nepal hafi orðið fyrir áhrifum af völdum hamfaraflóða á landamærum Nepals og Tíbet þann 26. ágúst.

Meira en 500 einstaklingar hafa látið lífið í flóðunum í Nepal og þúsunda er enn saknað. Samkvæmt upplýsingum frá UN Women í Nepal eyðilögðust um 10.000 heimili í flóðunum og mikilvægir innviðir einnig. Björgunaraðgerðir standa enn yfir.

 

Eftirlifendur standa frammi fyrir fjölþættum áskorunum

Þau sem lifðu hamfarirnar af standa nú frammi fyrir fjölþættum áskorunum. Auk þess að hafa misst heimili sín er víða skortur á neysluvatni og fæðu. Rof hefur orðið í heilbrigðisþjónustu til barnshafandi kvenna og sjúkra. Konur á vergangi eru berskjaldaðri fyrir kynbundnu ofbeldi og mansali.

„Áhrifin eru enn að skýrast og verða ljósari með hverjum deginum,“ útskýrir Patricia Fernandez-Pacheco, talskona UN Women í Nepal.

„Við þekkjum af raun að þegar hamfarir og hörmungar gerast eykst tíðni kynbundins ofbeldis. Konur og stúlkur eru líklegri til að svelta þegar matarskortur verður. Þær eru jafnframt líklegri til að láta lífið í hamförum en karlmenn vegna stöðu sinnar.“

Á tímum neyðar og hamfara taka konur og stúlkur aukna umönnunarbyrði og oft neyðast þær til að ferðast lengri vegalengdir til að verða fjölskyldum sínum úti um hreint drykkjarvatn.

Konur mæta einnig hindrunum þegar þær reyna að sækja sér aðstoðar eða leita upplýsinga. Í Rasuwa, Nuwakot, Dhading Gorkha og Chitwan héruðum er ein af hverjum þremur konum ólæs. Ólæsar konur eiga erfitt um vik með að afla sér upplýsinga og eiga erfitt með að sækja um neyðaraðstoð, sem oft þarf að gera skriflega. Eitt af hverjum þremur heimilum í Bagmati-héraði er rekið af konu. Af þeim býr þriðjungur við fátækt.

 

Hvað gerir UN Women

UN Women hefur rekið skrifstofu í Nepal um árabil og bregst nú hratt við neyðarástandinu. UN Women rekur ýmis verkefni í samstarfi við félagasamtök á hamfarasvæðunum. Eitt slíkt verkefni er samfélagseldhús, rekið af konum, sem matreiðir máltíðir fyrir fólk sem misst hefur heimili sín. Verkefnið tryggir ekki aðeins fólki heita og næringarríka máltíð, heldur hljóta konurnar laun fyrir störf sín og taka beinan þátt í að styðja við nærsamfélag sitt.

UN Women hefur kallað eftir 2 milljónum bandaríkjadala í neyðarastoð til kvenna og stúlkna í Nepal. Hægt er að styðja við starfið með stökum styrk.

„Við verðum að tryggja aðstoð til kvenna og stúlkna sem eru á hamfarasvæðunum, fjarri allri neyðaraðstoð, og geta ekki mætt grunnþörfum sínum. Viðbragðsáætlanir verða að taka þarfir kvenna og stúlkna til greina, aðeins þannig er hægt að tryggja öryggi þeirra, reisn og áhrif,” sagði Fernandez-Pacheco.

 

Related Posts