
Konur á ferð um rústir Gaza.
Fjölskyldur á Gaza með konu sem einu fyrirvinnuna, glíma við meiri fátækt og skort en fjölskyldur með karlmann sem fyrirvinnu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu UN Women í Palestínu um stöðu einstæðra kvenna á Gaza.
Rannsóknin sýnir jafnframt að konur sem eiga eiginmenn sem er saknað, eru í varðhaldi eða óvitað er um afdrif þeirra, glíma við ýmsar áskoranir tengdar lagalegri stöðu sinni. Hið sama á við um konur hverrar eiginmenn eru lífshættulega slasaðir, fatlaðir eða glíma við aðrar áskoranir vegna átakanna. Við slíkar kringumstæður taka konur að sér auknar byrðar við umsjá heimilisins. Þær sinna umönnunarstörfum, taka allar ákvarðanir fyrir hönd fjölskyldunnar, sinna fjármálum heimilisins og eru tengiliður fjölskyldunnar við mannúðarsamtök vegna neyðaraðstoðar, allt á meðan eiginmaður þeirra er enn formlega skráður sem höfuð fjölskyldunnar. Þar sem lítið er vitað um þarfir kvenna í þessum aðstæðum og áskoranirnar sem þær mæta, er hætta á að þær falli á milli skips og bryggju þegar kemur að mannúðaraðstoð.
Glíma við meiri skort
Áframhaldandi átök, óöryggi og alþjóðlegur niðurskurður til þróunarmála hafa áhrif á úthlutun mannúðaraðstoðar til fólks á Gaza. Aðeins takmörkuðu magni matvæla, vatns, neyðarskýla og tíðar- og hreinlætisvara er hleypt inn á svæðið til fólks í neyð. Aðstæður leggjast af sérstökum þunga á konur í viðkvæmri stöðu.
Heimili þar sem konur eru einu fyrirvinnurnar hafa tvöfaldast frá því að stríðið hófst. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að konur sem eru einu fyrirvinnur fjölskyldna sinna glíma við fjölþættar áskoranir þegar kemur að húsaskjóli, tekjum, fæðuöryggi, vernd og aðgengi að neyðaraðstoð. Þörf er á hnitmiðuðum og skýrum aðgerðum ef ná á til kvenna sem stýra heimilum, en eru að mestu ósýnilegar þegar kemur að mannúðaraðstoð.
- 68% heimila þar sem konur eru einu fyrirvinnurnar sögðust eiga erfitt með að verða sér úti um húsaskjól, samanborið við 55% heimila þar sem karlmaður er fyrirvinna.
- 74% heimila þar sem konur eru einu fyrirvinnurnar kváðu heimili sín hafa eyðilagst, samanborið við 67% heimila þar sem karlmaður er fyrirvinna.
- Heimili þar sem kona var eina fyrirvinnan höfðu verið neydd á flótta að meðaltali átta sinnum frá því í október 2023. Heimili þar sem karlmaður er fyrirvinna höfðu verið neydd á flótta sjö sinnum að meðaltali frá upphafi stríðsins.
- 75 % kvenrekinna heimila segja fjárhagsaðstoð vera sína brýnustu þörf, samanborið við 63% karlrekinna heimila.
- 18,3% kvenrekinna heimila segjast ekki hafa hlotið neyðaraðstoð, samanborið við 8,7 % heimila þar sem karlmenn eru fyrirvinnur
Skýrslan sýnir jafnframt fram á skörun þegar kemur að ómættum þörfum kvenrekinna heimila. Nærri helmingur þeirra sagðist glíma bæði við skort á húsnæði og fjárhagsörðugleika, samanborið við 32% heimila þar sem karlmaður var fyrirvinna. Þá töldu 20% þeirra að öryggisþörfum þeirra væri ekki mætt, samanborið við 10% karlrekinna heimila.
Lagalega ekki skilgreindar sem ekkjur
Raunveruleiki þessara kvenna er sá að þær glíma við óöryggi, matar- og fjárskort og takmarkanir vegna lagalegra réttinda sinna, samhliða því að taka á sig auknar umönnunarbyrðar og ábyrgð.
Þessi heimili, og þá einkum þau er rekin eru af konum sem ekki eru taldar ekkjur í lagalegum skilningi, verða að hljóta forgang þegar kemur að neyðarúthlutunum sem innihalda m.a. fjárstyrki, efni til viðgerða á tjöldum og sálrænan og lagalegan stuðning, þegar það á við.
UN Women í Palestínu hvetur til þess að neyðarúthlutanir taki mið af ferðatakmörkunum kvenna á Gaza og ábyrgðarhlutverki þeirra. Nauðsynlegt sé að skilja að konurnar séu ekki aðeins ábyrgar fyrir skráningum fyrir úthlutunum, sækja vistirnar og halda utan um heimilið. Neyðarúthlutun þarf að vera hönnuð þannig að hún taki sem skemmstan tíma, krefjist ekki langs ferðalags eða stefni öryggi kvenna í hættu.
Einföld atriði á borð við rafrænar skráningar, minni kröfur um framvísun persónuskilríkja þegar slík gögn hafa glatast eða eyðilagst, örugga staði til úthlutunar og skýra upplýsingagjöf. Bjóða þarf upp á aðra valkosti fyrir konur sem eiga erfitt með að yfirgefa heimili sín til að stækja neyðaraðstoð, meðal annars vegna fötlunar og/eða umönnunar barna og veikra fjölskyldumeðlima.
Þú getur stutt við starf UN Women í Palestínu hér.

