
Nour veit ekki hvort eiginmaður hennar sé lífs eða liðinn eftir að honum var rænt.
Hiba og Nour eru á meðal þeirra tugþúsunda palestínskra kvenna sem takast á við daglegt líf á Gaza án eiginmanns eða fjölskyldu. Frásagnir þeirra eru til marks um erfiðleikana sem margar konur þurfa að yfirstíga til að sjá börnum sínum farborða í stríði.
Fyrir stríðið var einu af hverjum 8 heimilum á Gaza stýrt af konu. Nú er eitt af hverjum 4 heimilum á svæðinu með konu sem einu fyrirvinnu fjölskyldunnar. Margar fjölskyldur hafa misst eiginmenn, feður og bræður í stríðinu. Aðrar vita hreinlega ekki um afdrif karlkyns ástvina sem er ýmist saknað, þeir verið hnepptir í varðhald, þeim rænt eða lík þeirra hafa aldrei fundist.
Saga Hibu: Er fötluð og einstæð móðir
Hiba er 34 ára gömul og býr í Al-Mawasi, Khan Younis. Hún er ein um uppeldi 10 ára sonar síns, Ahmad, eftir að eldri bróðir hennar var drepinn í sprengjuárás. Bróðir Hibu var hennar helsti bandamaður og veitti henni ómetanlegan stuðning í veikindum hennar og við uppeldi Ahmads eftir að eiginmaður hennar yfirgaf hana og soninn.
„Í hvert sinn sem mig vantar eitthvað man ég eftir öllu sem ég átti áður, en hef nú glatað. Það brann allt,“ minnist Hiba.
Hún hefur glímt við alvarleg veikindi í mörg ár, meðal annars heilaæxli sem varð til þess að hún missti að hluta sjón og heyrn. Þegar stríðið hófst árið 2023 hrakaði heilsu hennar hratt og var hún lögð inn á spítala með blóðtappa.
„Stríðið hefur verið okkur erfitt. Ég fór á milli spítala í leit að lyfjum vegna veikinda minna, en það var engin lyf að fá.“
Bróðir Hibu var eina manneskjan sem henni fannst hún geta reitt sig fullkomlega á. Hann fylgdi henni í læknisheimsóknir, aðstoðaði hana í samskiptum við aðra og studdi fjárhagslega við hana og son hennar. Hann byggði handa henni lítið heimili við hlið húss síns svo hún væri ekki of fjarri honum. Vegna sjón- og heyrnarskerðingar sinnar þarf Hiba mikla aðstoð í daglegu lífi.
„Hann var minn stuðningur. Hann var það eina sem ég átti í þessu lífi.“
Þann 13. nóvember 2024 var bróðir Hibu drepinn í sprengjuárás. Í árásinni missti Hiba einnig heimili sitt.
„Bróðir minn var mér allt. Líf mitt umturnaðist eftir þetta. Ég missti allt. Húsið mitt var mér mikilvægt, það hafði tilfinningalegt gildi fyrir mér. Það var gjöf bróður míns til mín og þar skapaði ég fallegar minningar. En húsið hvarf, bróðir minn hvarf og öryggi mitt hvarf. Ég hef nú engan til að leita til, til að vernda mig.“
Þú getur stutt við starf UN Women í Palestínu með stökum styrk.
Saga Nour: Einstæð móðir eftir hvarf eiginmannsins
Nour er 35 ára listakona og fjögurra barna móðir. Hún lagði á flótta eftir að heimili hennar eyðilagðist í sprengjuárás. Hún er eina fyrirvinna fjölskyldunnar eftir að eiginmanni hennar, sem var hjúkrunarfræðingur, var rænt. Hún hefur engar fregnir fengið um afdrif hans.
Stríðið og hvarf eiginmanns hennar hafa haft gríðarlega neikvæð áhrif á andlega líðan Nour. „Stundum brest ég í óstjórnlegan grát. Stundum sekk ég í eigin hugsanir og sýni engin viðbrögð, ekki einu sinni þegar börnin reyna að tala við mig.“
Ný skýrsla UN Women í Palestínu um stöðu einstæðra kvenna á Gaza, sýnir að fjölskyldur á Gaza með konu sem einu fyrirvinnuna glíma við meiri fátækt og skort en fjölskyldur með karlmann sem fyrirvinnu. Fyrir fatlaðar konur eins og Hibu eru áskoranirnar enn meiri. Líkamlega er hún ófær um að standa í langan tíma og á því erfitt með að bíða í röð eftir matarúthlutunum. Hún heyrir ekki þegar upplýsingar eru kallaðar yfir mannmergðina og sjónskerðingin gerir henni nær ómögulegt að komast á milli staða án aðstoðar.
„Ég glími ekki aðeins við fæðuskort og krónísk veikindi. Ég glími við stöðugar áskoranir í daglegu lífi. Það eitt að elda mat og komast á salernið krefst meira af mér en þeim sem eru með fulla sjón og heyrn.“
Hvað gerir UN Women til að styðja við konur á Gaza?
UN Women starfar með samtökunum Aisha Association for Woman and Child Protection Hiba á Gaza. Þessi samtök veita sálfélagslegan stuðning, læknisaðstoð, stuðningstæki, neyðaraðstoð og fjárhagslegan stuðning. Þessi þjónusta hefur gert Hibu kleift að mæta grunnþörfum sínum, sækja læknisþjónustu og fá aðstoð við daglegt líf.
Nour hefur fundið sáluhjálp í listsköpun sinni. „List og listmálun hefur verið mitt athvarf í gegnum stríðið. Ég tjái mig í gegnum listina, þar hef ég fundið leið til að létta á sársaukanum og sorginni sem ég upplifi innra með mér. Þannig get ég sent skilaboð til heimsins um þjáningar fólks á flótta og baráttu mæðranna hér.“

