Kjarnasjóður UN Women: Neyðarstarf, lagabreytingar og fæðingarorlof í Malí

Heim / Fréttir / Kjarnasjóður UN Women: Neyðarstarf, lagabreytingar og fæðingarorlof í Malí

Myndin sýnir hvaðan fjárframlög í kjarnasjóð UN Women koma. Landsnefndir UN Women eru á meðal stærstu styrktaraðila.

Skýrsla UN Women um kjarnaframlög ársins 2025 (e. Regular Resources Report) sýnir að landsnefndir UN Women voru í hópi þeirra er sendu hæstu fjárframlög til stofnunarinnar á síðasta ári. Af öllum þrettán landsnefndunum sendi UN Women á Íslandi hæsta framlagið – áttunda árið í röð – og er það aðeins gert mögulegt með óbilandi stuðningi almennings á Íslandi.

 

Hvað eru kjarnaframlög og af hverju eru þau mikilvæg?

Kjarnaframlög eru bakbein alls starfs UN Women og veita stofnuninni sveigjanleika til að bregðast hratt við og ráðstafa fjármunum þar sem þeirra er helst þörf að hverju sinni. Þetta er sérstaklega nauðsynlegt í heimi þar sem átök hafa aldrei verið fleiri og náttúruhamfarir verða tíðari.

Í fyrra var fjármagn úr kjarnasjóði UN Women meðal annars nýtt í lagaumbætur í þágu jafnréttis í nokkrum ríkjum. Teymi femínískra hagfræðinga, gagnasérfræðinga og lögfræðinga á vegum UN Women vinna þá með félagasamtökum og stjórnvöldum hvers ríkis við stefnumótun og aðgerðaráætlanir í þágu jafnréttis. UN Women tryggir jafnframt að allar stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafi kynjasjónarmið að leiðarljósi í sínu starfi.

 

Neyðarstarf á Gaza og lagabreytingar í Bosníu 

Í heildina veitti UN Women 228,2 milljónum bandaríkjadala úr kjarnasjóði sínum til verkefna árið 2025. Í skýrslunni er farið nokkuð ítarlega yfir mörg þau verkefni sem UN Women studdi við með fjármagni úr kjarnasjóði sínum. Þannig var 764.500 bandaríkjadölum veitt í neyðarverkefni í Afganistan, Kólumbíu, Mjanmar, Kongó, Palestínu, Úkraínu og Jemen. Sem dæmi hlutu fern kvenrekin félagasamtök á Gaza fjárstuðning svo þau gætu veitt lífsbjargandi þjónustu til kvenna og stúlkna á flótta. Með fjármagninu úr kjarnasjóði UN Women náðu samtökin til 7.035 kvenna og stúlkna á flótta, þar af voru 1.398 konur með fatlanir.

Í Bosníu Hersegóvinu studdi UN Women við breytingar á lögum um ofbeldi í nánu sambandi. Lagabreytingarnar fólu í sér aukna vernd fyrir þolendur, skýrðu lagalega skyldu stofnana betur og tryggðu að hægt væri að sækja gerendur til saka fyrir slík brot. Þá voru gerðar breytingar á almennum hegningarlögum í Kyrgyzstan og eltihrellingar og þvinguð hjónabönd þannig gerð refsiverð.

 

Grunnur lagður að fæðingarorlofi í Malí

Kjarnaframlög studdu einnig við fyrstu landsáætlun Tansaníu vegna ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna 1325 um konur, frið og öryggi. Áætlunin leggur áherslu á hvernig bregðast eigi við krísum og tryggja vernd almennra borgara, með sértækar þarfir kvenna að leiðarljósi.

Sambærileg vinna fór fram í Kenía þar sem þriðju aðgerðaáætlun þarlendra stjórnvalda var ýtt í framkvæmd. Áætlunin felur í sér aðgerðir til að takast á við aukið kynbundið ofbeldi, öfgahópa, afleiðingar átaka af völdum loftslagsbreytinga og stjórnmálalegan óstöðugleika, svo fátt eitt sé nefnt.

Undanfarið ár hefur UN Women lagt ríka áhersla á að auka veg og virði umönnunarstarfa, auka öryggi kvenna sem starfa á þeim vettvangi og tryggja fjárfestingar í þeim atvinnugeira, m.a. frá hinu opinbera innan ríkja Evrópu, Suður- og Mið-Ameríku og Afríku. Fjármagn úr kjarnasjóði var nýtt í mikilvæga stefnumótun í nokkrum ríkjum í Vestur-Afríku þar sem grunnur var lagður að launuðu fæðingarorlofi meðal ríkisstarfsmanna á Fílabeinsströndinni og í Malí.

Af hverju er mikilvægt að efla fjárfestingar í umönnunargreinum? Um 708 milljónir kvenna um allan heim eru enn útilokaðar frá fullri þátttöku á vinnumarkaði vegna ólaunaðrar umönnunarbyrðar sem hvílir á þeirra herðum, samanborið við 40 milljónir karla. Umönnunarbyrði er því stærsta einstaka hindrunin fyrir atvinnuþátttöku kvenna á heimsvísu.

Related Posts