fbpx

Blómstrandi fyrirtækjarekstur dreifbýliskvenna í Gvatemala

Heim / Dæmisögur / Blómstrandi fyrirtækjarekstur dreifbýliskvenna í Gvatemala
Stuðningur UN Women við dreifbýliskonur í Gvatemala gerir hópi af konum í Polochic-dalnum kleift að færa björg í bú með eigin rekstri.

„Ég ákvað að taka þátt í verkefninu vegna þess að ég vissi að það myndi bæta hag heimilisins“ segir hin 55 ára Candelaria Pec. „Með stuðningi frá UN Women getum við ræktað okkar eigin mat og bætt lífskjör okkar“

Candelaria er einn þátttakenda í verkefni á vegum UN Women sem miðar að því að auka fjárhagslegt sjálfstæði dreifbýliskvenna í Gvatemala. Hún tilheyrir hópi kvenna sem frá því í fyrra hefur markaðssett lífrænt sjampó sem þær búa til úr hráefnum á borð við kakó, lárperur og aloe vera. Hráefnin rækta þær sjálfar á búgörðum sínum. UN Women fengu markaðsfyrirtæki til að hanna merki og umbúðir utan um sjampóið sem konurnar seldu á mörkuðum í bænum til að byrja með. Reksturinn hefur blómstrað mikið á stuttum tíma og er varan komin í dreifingu í nærliggjandi bæjum.

Hópurinn hefur einnig hlotið fjármálafræðslu, sett upp sparnað og komið upp lánasjóði fyrir meðlimi samfélagsins sem kemur sér einstaklega vel. Til dæmis gat dóttir Carlottu Sam Pac fengið hagstætt lán hjá sjóðnum fyrir námsgjöldum sem gerði henni kleift að stunda háskólanám. Þannig heldur vinna hópsins áfram að gefa til samfélagsins og styrkja það.

Verkefnið hefur komið af stað hugarfarsbreytingum hjá karlkyns fjölskyldumeðlimum.

„Einu sinni var það þannig að konurnar unnu öll heimilisstörf og við vorum dauðþreyttar á því að bera einar ábyrgð á þeirri vinnu. Núna skiptum við heimilisverkunum á milli okkar og vinnuframlag beggja aðila er jafnt. Mennirnir sækja eldivið og hlúa að uppskerunni á meðan við eldum og reiðum fram matinn, ræktum grænmeti og búum til sjampóið“, segir Candelaria. „Eiginmenn okkar skilja nú að við getum haft stjórn á eigin fjármálum og fært björg í bú. Við erum meðvitaðar um efnahagsleg réttindi okkar og þeir komast ekki lengur upp með ósanngirni í okkar garð.“

UN Women hefur nú veitt yfir 1600 innfæddum dreifbýliskonum í Gvatemala stuðning. 135 af þeim reka nú eigin fyrirtæki. Þú getur lagt átakinu lið með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili hér. 
Related Posts