Ný stjórn landsnefndar UN Women á Íslandi var kjörin á aðalfundi félagsins á fimmtudaginn síðastliðinn.
Starfsemi landsnefndar hefur vaxið ört á undanförnum árum og hafa aldrei fleiri styrkt samtökin með mánaðarlegu framlagi. Framlög til verkefna erlendis hækkuðu um 40 prósent milli 2012 og 2013 og á íslenska landsnefndin hæsta framlag landsnefnda til Styrktarsjóðs Sameinuðu þjóðanna til afnáms ofbeldis gegn konum sem rekinn er undir hatti UN Women.
Guðrún Ögmundsdóttir hagfræðingur var endurkjörin formaður samtakanna. Í stjórn sitja sem fyrr Ólafur Stephensen ritstjóri, Kristjana Sigurbjörnsdóttir mannfjölda – og þróunarfræðingur, Frímann Sigurðsson verkefna- og verkferlastjóri, Guðrún Norðfjörð markaðsráðgjafi og Hrefna Dögg Gunnarsdóttir lögfræðingur. Eftirtaldir voru kjörnir nýir í stjórn á aðalfundi samtakanna: Arna Gerður Bang alþjóðastjórnmálafræðingur, Karen Áslaug Vignisdóttir hagfræðingur, Þórður Snær Júlíusson ritstjóri, Vilborg Ólafsdóttir leikstjóri og Magnús Orri Schram ráðgjafi. Í varastjórn sitja Fanney Karlsdóttir forstöðumaður og Soffía Sigurgeirsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur

