María Rut Kristinsdóttir ráðin kynningarstýra UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / María Rut Kristinsdóttir ráðin kynningarstýra UN Women á Íslandi

María Rut KristinsdóttirMaría Rut Kristinsdóttir hefur tekið við starfi kynningarstýru UN Women á Íslandi. Kynningarstýra samtakanna leiðir starf kynningarmála og kynningarsviðs samtakanna, hefur umsjón með átaksherferðum og samskiptum við fjölmiðla.

María Rut var áður aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, alþingismanns og formanns Viðreisnar og starfaði þar áður sem sérfræðingur á sviði mannréttindamála á skrifstofu mannréttinda- og sveitafélaga í innanríkisráðuneytinu og leiddi þar samráðshóp ráðherra um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins. Hún kom einnig að ýmsum öðrum verkefnum innan innanríkis- og dómsmálaráðuneytisins, þar með talið fullgildingarferlis Istanbúlssamningsins. María hefur jafnframt verið virk í ýmsum félagsstörfum m.a. sem formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, talskona Druslugöngunnar og varaformaður Samtakanna ’78.

María Rut útskrifaðist árið 2013 með B.S. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og árið 2018 með diplóma í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla.

„Við hjá UN Women fögnum því að fá Maríu Rut til liðs við okkar öfluga teymi. Hún býr yfir reynslu og þekkingu sem mun nýtast gríðarlega vel innan okkar stækkandi stofnunar. Áhersla Maríu Rutar á mannréttindi í sínum störfum mun svo sannarlega fá að blómstra innan okkar raða og við vitum að hún á eftir að koma inn af krafti í verkefnin okkar,“  segir Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Related Posts
ÚkraínaSima Sami Bahous, UN Women