Nýfengin mannréttindi hrifsuð af konum í Afganistan

Heim / Fréttir / Nýfengin mannréttindi hrifsuð af konum í Afganistan

Ákall til íslenskra stjórnvalda

UN Women á Íslandi biðlar til íslenskra stjórnvalda, að flytja afganskar konur sem barist hafa fyrir jöfnuði og auknum réttindum kvenna, frá Afganistan ásamt fjölskyldum og veita þeim alþjóðlega vernd. Þessar hugrökku konur; stjórnmálamenn, blaðamenn, lögfræðingar, læknar og starfsmenn kvennasamtaka hafa talað fyrir réttindum kvenna og barna og þar með fyrir opnu, fjölbreyttu og lýðræðislegu samfélagi og eru því í hve mestri hættu.

Í mörg ár hafa þær unnið í nánu samstarfi við vestræn ríki. Nú standa þær frammi fyrir hræðilegri meðferð.

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt hlutaðeigandi í Afganistan til að tryggja velferð þjóðarinnar og þá sérstaklega kvenna og barna.

Tilkynningum um alvarleg mannréttindabrot heldur áfram að fjölga. Vestræn ríki hafa unnið að því um helgina að flytja ríkisborgara sína sem og afganskt samstarfsfólk á brott frá landinu. Þúsundir hafa í örvæntingu flúið heimili sín. Stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa lýst ástandinu í Afganistan sem harmleik.

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti yfir sérstökum áhyggjum af auknu ofbeldi gegn konum og stúlkum á neyðarfundi öryggisráðsins, mánudaginn 16. ágúst 2021, og sagði það jafnframt grundvallaratriði að vernda réttindi afganskra kvenna og stúlkna eftir að Talibanar tóku völdin í Afganistan.

Það er sorglegt og óhugnanlegt að horfa upp á að nýfengin mannréttindi kvenna og stúlkna sem búið er að berjast fyrir, séu nú hrifsuð af þeim,“ sagði Guterres.

UN Women á Íslandi biðlar því til stjórnvalda að veita baráttukonum fyrir auknum mannréttindum og fjölskyldum þeirra á flótta frá Afganistan, alþjóðlega vernd.

Related Posts