Starfslýsing
• Hafa yfirumsjón með helstu fjáröflunarleið samtakanna, Systralaginu, og styrktaraðilum þess
• Vinna að stefnumótun Systralagsins
• Halda utan um götukynningar og úthringingar
• Greina gögn sem tengjast Systralaginu m.a. um innkomu og tölfræði styrktaraðila
• Sinna öðrum tilfallandi verkefnum á skrifstofu m.a. í kringum herferðir og viðburði samtakanna
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af greiningu tölulegra upplýsinga er kostur
• Þekking á jafnréttis- og þróunarmálum er kostur
• Reynsla og þekking á sölu- og markaðsmálum er kostur
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Hugmyndaauðgi og sjálfstæð vinnubrögð
• Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar veita Álfheiður og Hanna í síma 552-6200. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst. Umsóknir sendar á unwomen@unwomen.is
UN Women er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur eingöngu að jafnrétti og valdeflingu kvenna og stúlkna í fátækustu löndum heims. Íslenska landsnefndin styður starf UN Women á alþjóðavísu með fjáröflun, vitundarvakningu og réttindagæslu. Systralag UN Women er helsta fjáröflunarleið samtakanna og byggir á mánaðarlegum framlögum einstaklinga og fyrirtækja.