Á kvenréttindadeginum ber að heiðra þær mikilvægu konur sem lögðu grunninn að því frelsi sem íslenskar konur búa við í dag.
Á sama tíma er mikilvægt að horfa til framtíðar. Á næsta ári taka ný markmið við af þúsaldarmarkmiðunum og við fögnum 20 ára afmæli Beijing-sáttmálans.
Árið 1995 samþykktu 189 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna Beijing sáttmálann sem er af mörgum talinn ein framsæknasta áætlun hvað varðar kynjajafnrétti sem gerð hefur verið.
UN Women mun á næstu mánuðum setja fókusinn á þá 12 flokka sem sáttmálinn samanstendur af. Við munum fagna þeim árangri sem náðst hefur sem og vekja athygli á því sem betur má fara.
Á Nordiskt Forum, stærstu kvennaráðstefnu Norðurlandanna, sem fram fór í Malmö í síðustu viku sagði Phumzile Mlambo-Ngcuka framkvæmdastýra UN Women að kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna og stúlkna yrði náð fyrir árið 2030. Hún spurði viðstadda hvort þeim þætti þetta óraunhæft markmið. Salurinn skiptist í tvo hópa. “Ég hugsaði það sama með mér þegar ég skrifaði þetta markmið niður,” sagði hún hreinskilnislega á fundinum. “En þá hugsaði ég til Martin Luther King og Ég á mér draum ræðu hans. Margir töldu hann vera ansi brattann að leyfa sér að dreyma um heim þeim þar sem fólk af mismunandi kynþáttum gæti búið saman í sátt og samlyndi. Það sama á við um Nelson Mandela sem sagðist vera tilbúinn að deyja til þess að binda enda á aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku. Við höfum 15 ár. Þetta er okkar Ég á mér draum stund. Við höfum engu að tapa nema drauminum sjálfum.”
Til hamingju með daginn öll!