fbpx

65. Kvennanefndarfundur SÞ hefst í dag

Heim / Fréttir / 65. Kvennanefndarfundur SÞ hefst í dag

Í dag hefst 65. fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW65), fjölmennasti fundur baráttunnar fyrir auknu jafnrétti og bættri stöðu kvenna og sem haldinn er árlega í New York. Vegna COVID-19 fer fundurinn aðallega fram á fjarfundaform – sjá dagskrá hér.

Fólk hvaðanæva úr heiminum sækir fundinn, þeirra á meðal eru þjóðarleiðtogar, aðilar frjálsra félagasamtaka, starfsfólk fastanefnda ríkja og aktívístar grasrótarhreyfinga. Þema fundarins í ár er: Árangursrík og full þátttaka kvenna við ákvarðanatökur í opinberu lífi og útrýming ofbeldis, til að ná jafnrétti og valdeflingu allra kvenna og stúlkna.

Nýútkomin gögn sýna að framfarir í jafnréttismálum eru alltof of hægar:

  • Konur fylla aðeins 25% þingsæti á heimsvísu
  • Aðeins þrjú lönd hafa 50% eða fleiri konur á þingi, innan við eitt prósent eru konur yngri en 30 ára
  • Konur eru aðeins 13 prósent samningsaðila, 6% sáttasemjara og aðeins 6% undirritaðra í formlegum friðarferlum
  • Árið 2020 voru aðeins 7,4% af Fortune 500 fyrirtækjum rekin af konum
  • Aðeins 22 lönd í heiminum eru leidd af konum

Í úttekt UN Women sem gerð var í 87 löndum varðandi forystu og þátttöku kvenna við ákvarðanatökur í viðbrögðum við COVID-19 kom í ljós að í aðeins 3,5% þeirra ríkja mældist kynjajöfnuður við ákvarðanatökur.

Aukin tíðni heimilisofbeldis vegna útgöngubanna, konur minna lífsviðurværi sín frekar og hraðar þar sem þær eru berskjaldaðri fyrir efnahagshöggum, aukin byrði á herðum kvenna í heimilis- og umönnunarstörfum sýna allt fram á ólík áhrif faraldursins á líf kvenna og stúlkna.

Mikilvægt er einnig að líta sér fjær. Samkvæmt UN Women mun faraldurinn þrýsta 47 milljónum kvenna og stúlkna til viðbótar í sárafátækt svo í heildina munu 435 milljónir kvenna og stúlkna lifa í sárafátækt 2021, þ.e. 13% kvenþjóðar heimsins.

Við hjá UN Women á Íslandi búumst við kraftmiklum fundi í ár þar sem hann er sérstaklega mikilvægur í ljósi COVID-19 og þess bakslags sem á sér stað í jafnréttismálum á heimsvísu. Aukin réttindi og bætt staða kvenna og stúlkna er lykilþáttur í uppbygginga ríkja í kjölfar heimsfaraldursins. Við væntum þess að að sjá skýrar kröfur kvennahreyfingarinnar og jafnréttissamtaka lagðar fram sem munu þrýsta sem aldrei fyrr á ríki heims að kynjamiða aðgerðir og skilja engan eftir í aðgerðaráætlunum við uppbyggingu í kjölfar heimsfaraldursins. Við trúum því að nú sé tækifæri ríkja heims til að gera jafnrétti, fimmta heimsmarkmiðið,  þverlægt í öllum aðgerðum og opna augun fyrir því að konur og stúlkur er rúmur helmingur mannkyns, sem nýtur ekki grundvallarmannréttinda.

Sjá dagskrá

Related Posts