UN Women í Haítí veitti 150 konum með fatlanir neyðaraðstoð

Heim / Fréttir / UN Women í Haítí veitti 150 konum með fatlanir neyðaraðstoð

Mikið tjón varð á mannvirkjum í jarðskjálftanum.

UN Women í Haítí veitti 150 konum með fatlanir neyðaraðstoð í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir landið í ágúst í fyrra.

Jarðskjálfti að stærð 7,2 reið yfir vesturhluta Haíti þann 14. Ágúst 2021. Um  1.941 létust í skjálftanum, rúmlega 10.000 slösuðust og talið er að um 84.000 heimili hafi eyðilagst. 4 milljónir íbúa þurftu á neyðaraðstoð að halda í kjölfar skjálftans, þar af um 60% konur og stúlkur.

UN Women hefur verið á staðnum síðan í ágúst og m.a. veitt kvenmiðaða neyðaraðstoð. Þá hefur UN Women dreift hreinlætisvörum og matvælum til kvenna með fatlanir sem búsettar eru á hamfarasvæðinu. Síðan jarðskjálftinn reið yfir hafa þær átt erfitt með að komast leiðar sinnar og nálgast nauðsynjar. Þá hafa takmarkanir vegna COVID-19 heimsfaraldursins haft mikil áhrif á líf þeirra og heilsu.

„Konur og stúlkur með fatlanir hafa búið við mjög skert lífsgæði sökum jarðskjálftans og COVID-19. Þær eiga enn erfiðara með að komast á milli staða en áður og eiga erfitt með að nálgast mat, vatn og aðrar nauðsynjar. Því miður er það enn svo að konur með fatlanir gleymast alltof oft þegar neyðaraðstoð er veitt,“ segir Emanuela Paul, verkefnastýra hjá UN Women í Haítí.

Líklegri til að veikjast af COVID-19

Takmarkanir vegna COVID-19 heimsfaraldursins hefur orðið til þess að konur með fatlanir eru útsettari fyrir kynbundnu ofbeldi en áður. Þær eru einnig mun líklegri til að veikjast af COVID-19.

„Í mörgum tilfellum þurfa þær að reiða sig á aðstoð annarra við daglegar athafnir og þó þær sinni sjálfar persónulegum sóttvörnum, þarf ekki að vera að aðstoðarfólk þeirra geri það. Aukin einangrun vegna COVID-19 hefur svo þýtt að þær eru enn útsettari fyrir kynbundnu ofbeldi en áður og búa við aukna fátækt.“

UN Women í Haítí hefur barist fyrir því að fatlaðar konur og stúlkur verði ekki útundan þegar neyðaraðstoð er veitt og að tekið sé tillit til sértæktra þarfa þeirra. Konur með fatlanir eru fjölbreyttur hópur og með ólíkar þarfir. Í samstarfi við yfirvöld í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, hefur UN Women komið hreinlætisvörum, matvörum og vatni til 150 fatlaðra kvenna og stúlkna. Yfirvöld og þjónustuaðilar hafa jafnframt hlotið fræðslu um hvernig betur sé hægt að tryggja öryggi kvennanna.

Related Posts
António GuterresÚkraína