fbpx

Ómetanleg jólagjöf frá ELLU

Heim / Fréttir / Ómetanleg jólagjöf frá ELLU

DSC03941Í gær fagnaði UN Women á Íslandi (áður UNIFEM) 22 ára starfsmæli sínu  og af því tilefni var efnt til veislu í versluninni ELLU.

Samtökin fengu ómetanlega gjöf frá ELLU sem nam 519 þúsund krónum.ELLA er samfélagslega ábyrgt fyrirtæki og því ákvað Elínrós Líndal, eigandi ELLU að styðja UN Women með því að gefa eitt þúsund krónur af hverju seldu ilmvatni til samtakanna.  Styrkur ELLU rennur í Styrktarsjóð UN Women til afnáms ofbeldis gegn konum. Sjóðurinn er sá fjársveltasti innan UN Women en jafnframt sá eftirsóttasti og því skiptir hver króna máli.

UN Women þakkar ELLU kærlega fyrir þennan rausnarlega styrk og frábært samstarf!

Related Posts