Allir eru hjartanlega velkomnir í Hörpu þann 19. febrúar stundvíslega kl. 11.45 til að taka þátt í dansbyltingu. Ætlar þú ekki örugglega að taka þátt í byltingunni?
Aldrei hafa fleiri konur verið á flótta frá því við lok seinni heimstyrjaldar. Þær eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi, mansali og kynlífsþrælkun.
Í ár tileinkum við viðburðinum konum sem eru á flótta og leggja líf sitt að veði í leit að öruggara lífi fyrir sig og börn sín
Byltingin er haldin um allan heim og með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra. Það sem sameinar okkur er sterkara en það sem sundrar okkur.
Milljarður rís er einn stærsti viðburður í heimi og er haldinn í samstarfi Sónar Reykjavík. Í fjórða sinn ætlum við að sameinast í yfir 200 löndum fyrir hugrökkum konum um allan heim sem berjast gegn mótlæti, óréttlæti og misbeitingu í daglegu lífi. Við ætlum að veita þeim samstöðu og dansa af krafti.
Hátt í 10 þúsund manns hafa komið saman síðastliðin fjögur ár og fylkt liði á dansgólfum landsins. Í ár pússum við dansskóna enn betur og stígum baráttudans í Reykjavík, í Listasafninu Ketilhús á Akureyri, Stjórnsýsluhúsinu Ísafirði, félagsheimilinu Herðubreið Seyðisfirði, Hljómahöllinni Reykjanesbæ, íþróttahúsinu Neskaupstað og í Nýheimum Höfn í Hornafirði.
UN Women á Íslandi og Sónar Reykjavík skorar á alla; vinnustaði, skóla og vinahópa til að mæta með dansinn að vopni.
Í Hörpu heldur DJ Margeir dansgólfinu trylltu að vanda og óvænt atriði setur tóninn!
Aðangur er ókeypis og hægt verður að leggja frítt við Hörpu á meðan fjörinu stendur en fólk er hvatt til að koma gangandi eða nota almenningssamgöngur. Við hvetjum að sjálfsögðu fólk til að mæta með fokk ofbeldi húfuna sína á viðburðinn og bera hana með stolti.
Myllumerkið fyrir viðburðinn er #milljardurris16 og #fokkofbeldi
Konur á flótta þurfa vernd og öryggi
• Aldrei hafa fleiri konur verið á flótta frá því við lok seinni heimstyrjaldar
• Um 500 þúsund konur og börn flýja nú heimalönd sín og leggja leið sína til Evrópu
• Talið er að 12% kvenna sem ferðast yfir Miðjarðarhafið séu barnshafandi
• Gríðarleg aukning hefur orðið á mæðradauða síðan flóttamannakrísan hófst
• Konur og stúlkur á flótta eiga í stöðugri hættu á að vera beittar ofbeldi, kynferðislegri misnotkun eða mansali
Ekki missa af stærstu dansveislu heims – mætum og gefum ofbeldi fingurinn!
Skrifaðu undir yfirlýsinguna! http://bit.ly/1JoHGe3

