Meðalhiti jarðar heldur áfram að hækka

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Meðalhiti jarðar heldur áfram að hækka

Aftakaveðrum á borð við flóð og skógarelda heldur áfram að fjölga á næstu árum, samkvæmt nýrri skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC). Þá mun meðalhiti jarðar halda áfram að hækka.

Skýrsla IPCC dregur fram dökka framtíðarsýn, en þó ekki ókunnuga; með áframhaldandi losun góðurhúsalofttegunda eru meira en helmings líkur á að hlýnun jarðar nái 1.5°C einhverntímann á milli 2030 og 2052. Skýrslan segir óhjákvæmilegt að hlýnun jarðar nái 1.5°C í nánustu framtíð, nú ríði á að takmarka skaðann og tryggja að hlýnunin verði ekki meiri.

Ýmsar breytingar verða á veðurfari samfara hækkandi hitastigi jarðar. Sem dæmi má nefna tíðari hitabylgjur og ofsaregn, óvenjuháan sjávarhita, sterkari fellibylji og þurrka. Þá kemur fram að með áframhaldandi hlýnun jarðar verði almennt meiri uppgufun raka og því meiri úrkoma, þó þurrkar aukist á sumum heimssvæðum.

Það þykir augljóst að loftslagsbreytingarnar sem eiga sér stað í dag eru fyrst og fremst tilkomnar af manna völdum. Helstu orsakir loftslagsbreytinganna eru:

  • Mengun, t.d. af völdum iðnaðar og umferðar
  • Gróður- og landeyðingar, t.d. vegna landbúnaðar
  • Notkun ósjálfbærra orkugjafa

 

En hvernig bitna loftslagsbreytingar á konum og hver eru kynjuðu áhrifin?

Loftlagsbreytingar hafa ólík áhrif á okkur eftir búsetu, kyni og stöðu. Þær hafa til að mynda meiri áhrif á líf kvenna í fátækari ríkjum heims en okkar sem hér búum, og enn frekari áhrif á líf þeirra kvenna er búa á dreifbýlum svæðum þessara ríkja.

Meðal þeirra sértæku áhrifa sem loftslagsbreytingar hafa á líf kvenna eru:

  • Aukin tíðni þvingaðra barnahjónabanda
  • Aukin fátækt (konur eru 20% líklegri til að búa undir fátækramörkum en karlmenn, þessi tala mun hækka með áhrifum loftslagsbreytinga)
  • Slæm heilsufarsáhrif (t.d. vegna notkunar óvistvænna orkugjafa)
  • Útsettari fyrir ofbeldi (á flótta, ganga langar vegalengdir eftir vatni)
  • Aukin tíðni mæðradauða (eykst á tímum átaka, við fæðuskort, ef konur eignast börn ungar)Konur eru 14 sinnum líklegri til að látast í náttúruhamförum en karlmenn
  • Aukin tíðni heimilisofbeldis (eykst við fátækt, hamfarir, átök)

Við hjá UN Women á Íslandi tókum saman áhrifin á myndrænan hátt í gagnvirku prófi þar sem þér gefst tækifæri á að kanna þekkingu þína á kynjuðum áhrifum loftslagsbreytingar.

Kynntu þér betur hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa á líf kvenna og stúlkna í fátækari ríkjum heims með því að smella hér.

 

Related Posts
Caroline Fattal, UNW