Katrín Jakobsdóttir kynnir aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Katrín Jakobsdóttir kynnir aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni á alþjóðlegu jafnréttisráðstefnunni Kynslóð jafnréttis (e. Generation Equality Forum) sem fer nú fram í París.

Kynslóð jafnréttis er alþjóðlegt jafnréttisátak sem hófst árið 2020 og er stýrt af sex aðgerðabandalögum sem hafa ólík málefni að leiðarljósi. Ísland veitir aðgerðabandalagi um kynbundið ofbeldi forystu.

Forsætisráðherra sagði það heiður að leiða aðgerðabandalag í svo mikilvægum málaflokki og kvaðst vona að raunveruleg framþróun muni eiga sér stað í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi á næstu fimm árum, bæði á Íslandi og um allan heim.

„Þetta er mikilvægt framtak sem gefur okkur færi á að vinna með ólíkum aðilum,“ sagði Katrín. Í ávarpi sínu minntist hún einnig á #MeToo bylgjuna sem heldur áfram að ljá konum rödd og draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið og inn í samfélagsumræðuna.

Íslensk stjórnvöld hafa sett fram metnaðarfulla aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi í 23 liðum. Áætlunin kveður m.a. á um aukið fjarmagn til málaflokksins, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi, vitundarvakningu meðal drengja og karlmanna, lagabreytingar sem vernda betur þolendur kynbundins ofbeldis, áætlun til að takast á við stafrænt ofbeldi og aukið fjármagn til kvenrekinna grasrótarsamtaka sem styðja við þolendur og berjast gegn kynbundnu ofbeldi.

Aðgerðabandalagið sem íslensk stjórnvöld leiða samanstendur einnig af breskum og úrúgvæskum stjórnvöldum og Ford sjóðnum. Darren Walker, forseti Ford sjóðsins, sagði á fundinum í dag að fjármagn til grasrótarsamtaka þurfi að vera óháð skilmálum svo það nýtist sem best. „Árangur næst ekki fyrr en sjóðir fara að styðja við grasrótarsamtök rekin af konum. Við þurfum að viðurkenna að þar býr sérfræðiþekkingin og þar er lausnina að finna. Við þurfum að veita fjármagn til nokkurra ára svo grasrótin geti látið drauma sína rætast, svo þau geti gert framtíðaráætlanir og byggt upp tæknilegar lausnir. Við þurfum að fjármagna þessi samtök, ekki aðeins svo að rödd þeirra heyrist, heldur svo þau geti magnað hana upp,“ sagði Walker.

Evrópusambandið hefur að auki samþykkt að veita 190 milljónir evra til málefna er tengjast kynbundnu ofbeldi, þar með talið til grasrótarsamtaka. Sambandið hyggst einnig efla reglugerðir sem taka á kynbundnu ofbeldi og efla viðbragð sitt við kynbundnu ofbeldi.

Markmið Kynslóðar jafnréttis er að ríki, alþjóðastofnanir, frjáls félagasamtök og einkaaðilar sameinist um úrbætur á sviðum þar sem enn hallar á konur og stúlkur í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Frönsk og mexíkósk stjórnvöld fara með yfirstjórn verkefnisins ásamt UN Women.

Hér má lesa skuldbindingar íslenskra stjórnvalda í heild. 

Related Posts
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir