fbpx

Hvatningarverðlaun jafnréttismála afhent í 6. sinn

Heim / Fréttir / Hvatningarverðlaun jafnréttismála afhent í 6. sinn

Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2019 verða afhent miðvikudaginn 27. nóvember á morgunfundi um jafnréttismál í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 8.30-10. Öll eru velkomin en vinsamlegast skráið þátttöku hér.

DAGSKRÁ

Jafnrétti finnst í menningu fyrirtækja
Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm sem hlaut Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2018

Til fyrirmyndar í fluginu!
Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samfélagsábyrgðar hjá Icelandair

Valdaójafnvægi á vinnumarkaði: Fleytir ást kvenna körlum áfram í atvinnulífinu?
Ólöf Júlíusdóttir, doktor í félagsfræði frá Háskóla Íslands

Hvatningarverðlaun jafnréttismála
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar, afhendir verðlaunin

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, stýrir fundinum. Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins,  Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands en sérstakur samstarfsaðili verkefnisins er UN Women á Íslandi. Morgunkaffi og með því frá kl. 8.10.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

SKRÁNING HÉR

Related Posts