fbpx

Grípa til hræðilegra neyðarúrræða til að brauðfæða börn sín

Heim / Dæmi um styrktarverkefni / Grípa til hræðilegra neyðarúrræða til að brauðfæða börn sín
Afganistan, Móðir og barn, betla, kuldi. snjór, 2021

Móðir og barn sitja úti á götu í Kabúl í kulda og snjó og betla peninga. (Scott Peterson/Getty Images)

Staða kvenna í Afganistan hefur versnað til muna síðan talíbanar hrifsuðu til sín völd í landinu í ágúst í fyrra. Algjört efnahagslegt hrun landsins auk tíðra náttúruhamfara á borð við þurrka, flóð og jarðskjálfta hafa orsakað uppskerubresti og haft þær afleiðingar að um 90% afgönsku þjóðarinnar stendur nú á barmi hungursneyðar.

Rithöfundurinn og fréttastjórinn Christina Lamb líkir atburðarrásinni sem hrundið var af stað fyrir rúmu ári síðan við það að verða vitni að hægum dauða heillar þjóðar. Í grein Christinu Lamb í The Times, kemur fram að afganskar fjölskyldur hafi gripið til hræðilegra neyðarúrræða til að geta séð fjölskyldum sínum fyrir mat, m.a. að selja allar eigur sínar, gefa börnum sínum deyfilyf gegn hungurverkjum, selja líffæri sín og selja barnungar dætur sínar, allt niður í eins árs gamlar, í burtu.

Hún segir frá því þegar hún hitti hina átta ára gömlu Fatimu í janúar á þessu ári og lýsir stúlkunni sem feiminni með augun full af sorg. Faðir Fatimu hafði neyðst til að selja hana í hjónaband svo hægt væri að brauðfæða aðra fjölskyldumeðlimi, en stórfjölskylda Fatimu telur 30 einstaklinga sem draga nú fram lífið á einungis 8 brauðhleifum á dag.

Mæður svelta sig

Flóð og þurrkar í Afganistan hafa eyðilagt uppskerur og stríðið í Úkraínu hefur heft kornflutning til landsins. Meirihluti þjóðarinnar glímir við sult og um 70% barna eru vannærð. Mæðra- og ungbarnadauði hefur margfaldast á síðastliðnu ári því barnshafandi mæður svelta sig til að geta í staðinn gefið börnum sínum meira að borða.

Lamb segir afgönsku þjóðina þó búa yfir einstakri þrautseigju eftir að hafa lifað við stríð síðustu fjóra áratugina. En það þarf meira en þrautsegju til að komast í gegnum það neyðarástand sem nú ríkir í landinu; Afganir segja gríðarlega mikilvægt að vita af því að umheimurinn hafi ekki gleymt þeim og sé tilbúin til að veita þeim stuðning.

20 ára mikilvægt starf

UN Women hefur sinnt verkefnum í Afganistan í tuttugu ár. Stofnunin og starfsfólk hennar hafa þurft að bregðast hratt við gjörbreyttum aðstæðum eftir valdatöku talíbana í ágúst 2021. UN Women, líkt og aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna, á í stöðugu samtali við talíbanastjórnina svo hægt sé að tryggja áframhaldandi störf í landinu og öryggi starfsmanna og þeirra afgönsku kvenna sem nýta sér þjónustu UN Women.

Meðal mikilvægustu verkefna UN Women í Afganistan eru mannréttindagæsla og fjölbreytt verkefni sem stuðla að jafnrétti og sjálfbærni. Undanfarna mánuði hefur stofnunin eflt til muna þjónustu við þolendur ofbeldis, m.a. með því að koma á fót kvennaathvörfum, veita konum fjárstuðning, sálgæslu og aðra nauðsynlega þjónustu.

Táknræn jólagjöf UN Women á Íslandi í ár er neyðarpakki til kvenna í Afganistan. Vegna þeirra takmarkana sem afganskar konur búa við eiga þær erfitt með að nálgast nauðsynjar á borð við hreinlætisvörur. Neyðarpakkinn tekur mið af sértækum þörfum kvenna og auðveldar þeim að viðhalda persónulegu hreinlæti.

Taktu þátt í að styðja við konur í Afganistan með kaupum á Táknrænni jólagjöf

Related Posts
Fæðingadeild, Úkraína, stríð