Í dag er alþjóðadagur kvenna í dreifbýli. Yfirskrift dagsins í ár er „Konur í dreifbýli rækta í þágu allra“.

Mynd: UN Women/Dzilam Méndez
Konur í landbúnaði vinna við ræktun matvæla, uppskeru þeirra, vinna hráefnið, matreiða það og koma því í sölu. Vinna þeirra fæðir ekki aðeins fjölskyldur þeirra og nærsamfélög, heldur allan heiminn. Þrátt fyrir þetta mikla vinnuframlag þeirra njóta konur í dreifbýli ekki sömu réttinda og karlmenn. Í fjölda ríkja fá þær ekki að eiga landeignir, þéna minna og búa við meira fæðuóöryggi en karlmenn.
COVID-19 og áhrif loftslagsbreytinga hafa fjölgað þeim sem búa við viðvarandi fæðuóöryggi í heiminum. Árið 2020 höfðu 2,4 milljarða jarðarbúa ekki ekki nóg að bíta og brenna. Það er 20% fleiri einstaklingar en árið á undan.
- Færri en 15% landeiganda í heiminum eru konur
Við hjá UN Women höfum kallað eftir auknum stuðningi við konur í landbúnaði. UN Women styður við konur og stúlkur í dreifbýli með því að veita þeim fræðslu, fjármagn og tólin til að stunda sjálfbæra matvælaframleiðslu. Slíkur stuðningur hefur ekki aðeins jákvæð áhrif á líf kvennanna og fjölskyldna þeirra, heldur einnig á umhverfið. Konurnar verða fjárhagslega sjálfstæðar, geta fætt fjölskyldur sínar og komið á fót umhverfisvænni matvælaframleiðslu.
Með því að gerast ljósberi, styður þú við starf UN Women á Íslandi og gerir okkur kleift að halda áfram að efla konur á dreifbýlum svæðum um allan heim, m.a. við bak kvenbænda í Marokkó.
Konurnar framleiddu flestar ilmvötn, lækningajurtir og ilmkjarnaolíur en neyddust til þess að stöðva framleiðslu og sölu afurða sinna er COVID-19 heimsfaraldurinn skall á. Til að bregðast við því setti UN Women á laggirnar netþjálfun fyrir kvenbændur í þremur héruðum svo þær gætu hafið ræktun og framleiðslu á ný. Á námskeiðinu fræddust konurnar um viðurkenndar aðferðir við sótthreinsun og hreinlæti við framleiðslu afurða sinna. UN Women kom einnig á fót námskeiði um hvernig markaðssetja megi afurðir á netinu og öðlast þannig sýnileika, stækka markhóp sinn og afla um leið tekna.

