„Ég hélt ég myndi ekki lifa þetta af“

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / „Ég hélt ég myndi ekki lifa þetta af“

Í dag kynnum við hjá UN Women á Íslandi nýja herferð þar sem fjölbreyttur hópur kemur fram og minnir okkur á að gleyma ekki einum heimsfaraldri í skugga annars.

Í myndbandinu sjáum við fólk með grímur labba inn í myndver, setjast niður og byrja að lýsa líkamlegum einkennum. Í fyrstu virðist sem um einkenni COVID-19 sé að ræða en þegar líður á myndbandið sjáum við að nákvæmlega sömu einkenni má heimfæra yfir á afleiðingar þess að hafa verið beitt ofbeldi.

„Markmiðið með að fá svona fjölbreyttan hóp til að taka þátt í myndbandinu er að sýna þann fjölbreytileika sem þolendur kynbundins ofbeldis endurspegla. Við erum gríðarlega þakklát þátttakendum sem gáfu vinnu sína,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Við hjá UN Women á Íslandi höfum vakið athygli almennings undanfarin 30 ár á þeim heimsfaraldri sem kynbundið ofbeldi er og fjallað um ofbeldi gegn konum og stúlkum sem útbreiddasta mannréttindabrot heims.

Markmið herferðarinnar er að hvetja fólk til að gerast ljósberar UN Women, en ljósberar styðja við UN Women með mánaðarlegu framlagi og taka þar með virkan þátt í að uppræta kynbundið ofbeldi á heimsvísu.

Vissir þú að?

  • 600 milljónir kvenna búa í landi þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert.
  • 243 milljónir kvenna 15-49 ára voru beittar ofbeldi af nánum maka árið 2020.
  • Fyrir hverja þrjá mánuði í útgöngubanni bætast fimmtán milljónir stúlkna og kvenna í hóp þolenda.
  • Það sem af er ári 2021 hefur orðið 23% aukning á tilkynningum um heimilisofbeldi á Íslandi samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára.
  • Á þessu ári er áætlað að yfir fjórar milljónir kvenna og stúlkna muni bætast í hóp þeirra sem eiga í hættu á að vera limlestar á kynfærum sínum.

Gleymum ekki einum heimsfaraldri í skugga annars. Þörfin á stuðningi við starf UN Women hefur aldrei verið meiri.

Sjá myndband

Related Posts