258 milljón börn og ungmenni hljóta ekki menntun

Heim / Fréttir / 258 milljón börn og ungmenni hljóta ekki menntun

Aðgengi að menntun telst til almennra mannréttinda. Þrátt fyrir það hefur fjölgað í hópi þeirra stúlkna sem hljóta ekki grunnmenntun, meðal annars vegna áhrifa COVID-19 heimsfaraldursins.

Alþjóðadagur menntunnar er í dag, 24. janúar, og er honum ætlað að vekja athygli á mikilvægi þess að öll börn af öllum kynjum hafi aðgengi að menntun.

Menntun er ekki aðeins leið margra úr fátækt, heldur fyrir hvert ár sem stúlka heldur áfram námi, dregur það úr líkum á að hún verði þvinguð í barnahjónaband. Menntun er jafnframt helsta og skilvirkasta tólið í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir sjálfbærari framtíð.

  • 15 milljón stúlkna á grunnskólaaldri sækja ekki skóla
  • 258 milljón börn og ungmenni hafa ekki færi á að afla sér menntunnar
  • Innan við 40% stúlkna í ríkjum sunnan Sahara ljúka grunnskólanámi
  • 4 milljónir barna og ungmenna á flótta eru ekki í skóla í dag

Menntun vinnur gegn fátækt

Menntun kvenna hefur bein og jákvæð áhrif á lýðheilsu og efnahag ríkja og vinnur gegn sárafátækt og fólksfjölgun. Vel menntaðar þjóðir búa við meiri hagsæld, hærri lífaldur og meira lýðræði en þjóðir þar sem menntunarstig er lágt.

Heimsmarkmið 4 miðar að því að tryggja jafnan aðgang allra að góðri menntun og stuðla að tækifærum allra til náms alla ævi. Það þarf ýmislegt að breytast ef það markmið á að nást fyrir árið 2030.

UN Women styður við menntun kvenna og stúlkna með því að þrýsta á lagabreytingar sem styðja réttindi stúlkna til náms og veitir konum á flótta menntun og starfsþjálfun í griðarstöðum sínum. Þá vinnur UN Women að því að tryggja aðgengi unglingsstúlkna að tíðarvörum til að koma í veg fyrir brottfall þeirra úr skóla.

Með því að gerast ljósberi UN Women á Íslandi tekur þú beinan þátt í að tryggja stúlkum jafnan aðgang að menntun, óháð búsetu og uppruna. Þitt framlag skiptir sköpum.

Skráðu þig hér

Related Posts
Rohingjar, eldur, Cox's Bazar