fbpx

Ekkert land þrífst ef hálf þjóðin er réttindalaus

Heim / Fréttir / Ekkert land þrífst ef hálf þjóðin er réttindalaus

Meira en helmingur afgönsku þjóðarinnar er í brýnni þörf fyrir neyðaraðstoð, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum. Í kjölfar valdatöku talíbana þann 15. ágúst, var öll þróunaraðstoð til landsins fryst. Nú stendur stór hluti Afgana frammi fyrir viðvarandi hungursneyð, atvinnuleysi og sárafátækt verði ekkert að gert.

António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, biðlar til alþjóðasamfélagsins um að endurskoða afstöðu sína gagnvart frystingu fjármagns til Afganistan. Án þróunaraðstoðar verði afgönsku þjóðinni steypt í sárafátækt. Íbúar landsins séu þegar orðnir örvæntingafullir og úrkula vonar.

„Foreldrar hafa selt ungbörn sín til að fæða eldri systkini. Sjúkrahús eru flest án hita og anna ekki öllum þeim börnum sem þangað leita vegna vannæringar. Fólk notar húsmuni sem eldivið til að halda á sér hita í kuldanum og stendur frammi fyrir gríðarlegu atvinnuleysi. Þörfin eftir aðstoð er gríðarleg,“ sagði hann.

Einstæðar og fráskildar konur í viðkvæmri stöðu

Guterres ítrekaði jafnframt ákall sitt til talíbana um að virða réttindi afganskra kvenna og stúlkna. Síðan talíbanar komust til valda hafa réttindi kvenna og stúlkna verið hrifsuð af þeim og margar konur farið huldu höfði af ótta við refsingar og ofbeldi. Í hópi þeirra eru kennarar, mannréttindafrömuðir, stjórnmálakonur og fjölmiðlakonur. Einstæðar og fráskildar konur eru í sérlega viðkvæmri stöðu og eiga á hættu að missa forræði yfir börnum sínum undir sjaría lögum. Þær hafa jafnframt enga möguleika á að afla sér tekna undir þeim hömlum sem talíbanar hafa sett konum.

„Konur og stúlkur eru fjarverandi á vinnustöðum og skólastofum út um allt Afganistan. Heil kynslóð stúlkna býr við þann raunveruleika að mega ekki láta ljós sitt skína. Vísindakonur, lögfræðingar og kennarar fá ekki að sinna störfum sínum og á meðan verður Afganistan, og heiminum öllum, af framlagi þeirra. Ekkert land getur þrifist samhliða því að neita hálfri þjóðinni um réttindi sín.“

UN Women er í Afganistan og sinnir þörfum afganskra kvenna og stúlkna. Meðal verkefna UN Women í Afganistan er að veita konum á flótta neyðarpakka og -aðstoð, heilbrigðisþjónustu og ráðgjöf. UN Women í Afganistan vinnur jafnframt að því að koma á fót griðarstöðum fyrir konur og börn þeirra og afla gagna um stöðu afganskra kvenna og þarfir þeirra svo hægt sé að veita fjármunum þangað sem þeirra er helst þörf.

Með því að styrkja starf UN Women gerir þú okkur kleift að vera á staðnum og sinna þörfum afganskra kvenna og stúlkna.

Related Posts