fbpx

Annar eldsvoði ársins í stærstu flóttamannabúðum heims

Heim / Fréttir / Annar eldsvoði ársins í stærstu flóttamannabúðum heims

Rohingjar, eldur, Cox's BazarMikill eldsvoði geisaði í Cox‘s Bazar flóttamannabúðunum í Bangladesh síðastliðinn sunnudag. Búðirnar eru heimili þúsunda Rohingja sem flúið hafa ofsóknir og fjöldamorð í nágrannaríkinu Mjanmar.

Eldsins varð fyrst vart seinni part sunnudags og var fljótur að breiðast út um búðirnar, sem eru einar stærstu flóttamannabúðir heims. Engin dauðsföll hafa verið tilkynnt en einhverjir slösuðust í eldinum. Upptök eldsins eru enn ókunn.

Annar eldsvoðinn á árinu

Ýmsar stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa brugðist við og hafa veitt íbúum búðanna neyðaraðstoð, matvæli, vatn, hreinlætisvörur og sæmdarsett. Stærsta verkefnið nú er að endurreisa búðirnar svo hægt sé að koma fólki í skjól, en kalt er á svæðinu á þessum tíma árs.

Þetta er í annað sinn á árinu sem eldur brýst út í Cox‘s Bazar. Stór eldsvoði átti sér stað 2. janúar þar sem þjónustumiðstöð og spítali rekinn af Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninni (IOM) eyðilagðist, auk annarra bygginga.

Eldhætta er mikil í búðunum vegna þéttrar byggðar og ófullnægjandi húsnæðis og eldunaraðstöðu. Af þeim rúmlega milljón Rohingjum sem flúið hafa ofsóknir og fjöldamorð mjanmarska hersins, búa um 600.000 þeirra í Cox‘s Bazar. Meirihluti þeirra eru konur og börn.

UN Women og aðrar stofnanir Sþ ítreka að þó mikil þörf sé á matvælaaðstoð til íbúa búðanna sé einnig gríðarlega mikilvægt að koma til þeirra nauðsynjum á borð við hreinlætisvörur, þvottaefni og fatnaði svo hægt sé að tryggja persónulegt hreinlæti og öryggi.

Þú getur hjálpað með því að kaupa sóttvarnarpakka handa Rohingjakonu

Related Posts
CSW, 2019, Kvennanefndafundur, 63