
Afganskar konur munu eiga erfiðara með að nálgast mannúaðar- og neyðaraðstoð en áður. Photo:Women UN/SayedHabibBidel
Sendinefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna fundaði nýverið með talíbanastjórninni í Afganistan um stöðu kvenna og stúlkna í landinu. Farið var fram á að talíbanastjórnin afturkalli reglur er banni afgönskum konum að starfa fyrir alþjóðleg og innlend félagasamtök er sinna þróunarmálum. Sendinefndin var leidd af aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Amina Mohammed og Simu Sami Bahous, framkvæmdastýru UN Women.
Sendinefndin fundaði með fulltrúum talíbanastjórnarinnar bæði í Kabúl og Kandahar. Bannið var harðlega gagnrýnt, enda er það skýrt brot á réttindum kvenna og heftir starfsemi hjálparsamtaka í landinu.
Konur geta gert það sem karlar gera, en karlar geta ekki gert það sem konur gera
Afganskar konur sem starfa innan þróunarsamvinnu eru ómissandi fyrir starfskraftur, sér í lagi vegna allra þeirra hafta og banna sem talíbanastjórnin hefur komið á. „Konur geta gert það sem menn gera, en menn geta ekki gert það sem konur gera,“ sagði ein afgönsk starfskona. Vegna hafta og strangra reglna um samskipti kynjanna mega karlmenn ekki dreifa sæmdarsettum til kvenna, veita þeim heilbrigðisþjónustu eða áfallahjálp. Heimili sem rekin eru af konum og hafa ekki karlkyns fjölskyldumeðlim til að sækja mataraðstoð fyrir sig, hafa reitt sig á aðstoð starfskvenna félagasamtaka til að dreifa mataraðstoð til þeirra. Þessar fjölskyldur eiga nú á aukinni hættu að verða útundan þegar matar- og neyðaraðstoð er veitt. Þá torveldar bannið rekstur kvennaathvarfa, sem hafa fengið að starfa með sérstöku leyfi talíbana.
Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra, þar með talið alþjóðleg og innlend félagasamtök, hafa veitt um 25 milljónum Afgönum mannúðar- og neyðaraðstoð. Bann við störfum afganskra kvenna fyrir félagasamtök hefur afdrifaríkar afleiðingar fyrir samfélagið allt. 93% allra félagasamtaka sem nú starfa í landinu segjast ekki geta haldið úti þjónustu án aðkomu afganskra starfskvenna sinna. Þá er um 70% afganskra starfskvenna einu fyrirvinnur fjölskyldna sinna. Geti þær ekki haldið áfram að vinna og þéna, eru fjölskyldur þeirra án allrar afkomu.
Þá reiðir stór hluti afgönsku þjóðarinnar sig á mannúðaraðstoð til að draga fram lífið. Frá því í janúar 2022 og fram til nóvember sama ár, veittu mannúðar- og félagasamtök um 22 milljónum Afgana matar- og neyðaraðstoð. 12 milljónir hlutu heilbrigðisþjónustu, 6 milljónir barna og barnshafandi kvenna hlutu aðstoð til að koma í veg fyrir bráða vannæringu, 10,4 milljón einstaklingar fengu úthlutuðu vatni og hreinlætisvörum, svo fátt eitt má nefna.
Framfylgja banninu af meiri hörku

Starfskonur UN Women heimsækja héruð sem urðu illa úti í jarðskjálfta í Afganistan í júní 2022.
Samkvæmt skýrslu UN Women um kynjuð áhrif bannsins, kemur í ljós að talíbanastjórnin hefur framfylgt þessu banni með markvissari hætti en öðrum reglum sem settar hafa verið frá valdatöku þeirra. Hingað til hefur það verið í sjálfsvald héraðsstjóra sett hvort og hvernig þeir framfylgi bönnum sem yfirstjórnin í Kabúl setur.
Konur er starfa við þróunaraðstoð í Afganistan segjast hafa upplifað ógnanir, áreitni og handtökur reglulega frá því að talíbanar tóku stjórn í landinu í ágúst 2021. Frá því að nýja bannið var sett á þann 24. desember 2022 hafa talíbanar verið grimmari í að framfylgja því og reglulega heimsótt skrifstofur félagasamtaka til að ganga úr skugga um að engar konur séu þar að störfum.
Þá segja konur að bannið hafi gefið fótgönguliðum talíbana aukið færi á að yfirheyra, ógna og áreita konur, því nú sé engin ástæða fyrir því að nokkur kona sé á ferli utan heimilis án fygldarmanns.
Áfram í Afganistan
UN Women hefur verið starfandi í Afganistan í tvo áratugi og mun halda starfsemi sinni í þágu kvenna og stúlkna áfram. Meðal mikilvægustu verkefna UN Women í Afganistan er rekstur athvarfa fyrir konur sem flúið hafa heimilisofbeldi með börn sín. Þar fá konurnar heilbrigðisþjónustu, ráðgjöf og starfsþjálfun. Í Afganistan eru kvennaathvörf UN Women oft eina skjólið sem þolendur geta leitað til. Athvörfin taka einnig á móti heimilislausum konum, konum sem hafa verið útskúfaðar vegna ‚ósiðsamlegs athæfis‘ og konum með geðraskanir. Alls hefur UN Women komið á fót 25 athvörfum í 24 héruðum.
Sima Sami Bahous, framkvæmdastýra UN Women, segir stofnunina styðja afganskar konur í baráttunni fyrir mannréttindum sínum. „Í Afganistan urðum vitni að hugrekki og staðfestu afganskra kvenna sem neita að láta afmá sig úr opinberu lífi. Þær munu halda áfram að berjast fyrir réttindum sínum og það er skylda okkar að styðja þær í baráttunni. Atburðarrásin sem hófst árið 2021 í Afganistan er mikið áhyggjuefni. Það sýnir okkur hversu auðvelt er að svipta konur grundvallarmannréttindum sínum á ekki lengri tíma en nokkrum dögum. UN Women stendur sem áður með afgönskum konum og við munum tryggja að raddir þeirra haldi áfram að hljóma.“

