UN Women starfar í þágu kvenna á hamfarasvæðum í Nepal

Heim / Fréttir / UN Women starfar í þágu kvenna á hamfarasvæðum í Nepal

nepal-earthquake-Vlad-675x300Mæðginin Sujita og Jenif, fimm ára gamall sonur hennar, misstu heimili sitt í bænum Khokhana þegar fyrri jarðskjálftinn reið yfir Nepal.

Yfir 500 þúsund heimili hafa lagst í rúst og yfir þrjár milljónir kvenna og barna eru enn í hættu eftir þá öfluga jarðskjálfta sem riðu yfir Nepal nýlega.
Í náttúruhamförum sem og í öðrum átökum eru konur og börn berskjaldaðri fyrir kynferðisofbeldi, kynlífsþrælkun, kynsjúkdómum og ótímabærum þungunum.
UN Women í samstarfi við önnur starfandi félagasamtök sem starfa í þágu kvenna og stúlkna í Nepal vinna nú að kerfi sem miðar að því að vernda konur og koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi ásamt úrræðum fyrir konur sem fyrir því verða á hamfarasvæðinu. Í þessu felst að skapa örugg svæði með betri lýsingu og veita konum bæði áfallahjálp og sálfræðistuðning.
Einnig hefur UN Women dreift svokölluðu „Dignity kit“ til kvenna, þ.e. pakka sem inniheldur sextán hluti fyrir konur í neyð; fatnað, dömubindi, sápu, nærfatnað, tannkrem og tannbursta ásamt kyndli til lýsingar svo dæmi séu nefnd. Pökkunum er dreift sérstaklega til kvenna með fatlanir, þeirra sem eldri eru og einstæðra kvenna auk ekkna í þeim hverfum Katmandú sem urðu hve verst fyrir barði jarðskjálftanna.

Það gleður okkur mikið að segja frá því að partur af framlagi þínu í Systralagin rennur til verkefna í Nepal. Með mánaðarlegur framlagi þínu tekur þú þátt í að hlúa að þeim konum og stúlkum sem misst hafa heimili sín og lifa við bágan kost eftir jarðskjálftann sem reið yfir Nepal.

• Fyrir 650 krónur er hægt að veita fjölskyldum sem misst hafa heimili sitt, útvarp, sem veitir henni nauðsynlegar upplýsingar.
• Fyrir 1300 krónur má veita ljóslukt, sem aukið getur öryggi kvenna gagnvart kynbundnu ofbeldi.
• Fyrir 4.000 krónur má útvega konu í neyð pakka sem inniheldur sextán þarfa hluti eins og fatnað, dömubindi, sápu, nærfatnað, tannkrem og tannbursta ásamt kyndli til lýsingar svo dæmi séu nefnd.

Related Posts