
Afsana Islam Jonaki er transkona frá Khulna á Indlandi. Hún missti vinnuna í COVID-19 og var ein þeirra er hlaut fjárstuðning frá UN Women til að sjá sér fyrir nauðsynjum.
UN Women er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst fyrir og stendur vörð um réttindi hinsegin fólks. Jafnrétti verður ekki náð í heiminum nema með jöfnum réttindum allra hópa, þar með talið hinsegin fólks.
UN Women viðurkennir rétt fóks til að ákvarða eigið kyn og kynhneigð og telur slíkt ekki ógna velferð eða réttindum annarra samfélagshópa.
UN Women telur hingsegin hreyfinguna til bandamanna, enda berjast þau fyrir mannréttindum og jöfnum rétti, rétt eins og kvennahreyfingin.
Líkt og konur víða um heim, býr hinsegin fólk við ofbeldi, jaðarsetningu, fordóma, takmörkuð réttindi og lög sem mismuna vegna kyns og kynhneigðar.
Öll verkefni UN Women sem snúa að málefnum hinsegin fólks fylgja sömu fimm áherslumálum og verkefni stofnunarinnar sem miða að auknum réttindum kvenna:
- Auka pólitíska þátttöku og þátttöku í opinberu lífi
- Fjárhagsleg valdefling
- Uppræta kynbundið ofbeldi
- Friður og öryggi, neyðaraðstoð og varnaráætlanir sem taka mið af öllum kynjum
- Kynjuð gangaöflun og aðgerðaráætlun
UN Women þjálfar heilbrigðisstarfsfólk
Meðal hinsegin verkefna UN Women er þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í Líberíu svo það geti veitt hinsegin fólki viðunandi þjónustu og ráðgjöf í kynheilbrigði. Tíu heilbrigðisstarfsmenn í þremur héruðum Líberíu hafa hlotið þjálfun. Þá studdi UN Women við Samtök samkynhneigðra í Líberíu svo þau geti haldið úti fræðslu um HIV og smitvarnir.
Í Líbanon studdi UN Women við stofnun menningasetursins Haven for Artists sem rekið er í Beirút. Setrið er miðstöð fyrir konur og hinsegin fólk þar sem þau hljóta öruggt rými til að vera þau sjálf, sinna listum og hugðarefnum sínum auk þess að vera vettvangur fyrir samtal og samstöðu. Ýmsir viðburðir, uppákomur, fræðslukvöld og málstofur fara jafnframt fram í miðstöðinni.
Í Georgíu hefur UN Women tekið virkan þátt í að uppræta ofbeldi gegn hinsegin fólki með ýmsum leiðum, m.a. með því að styðja við grasrótarsamtök og vinna með stjórnvöldum að lagabreytingum.
UN Women hefur staðið að fræðslu til lögfræðinga, lögreglu og stjórnvalda um þá margþættu mismunun og ofbeldi sem hinsegin fólk býr við í Georgíu. 189 sérfræðingar hafa hlotið slíka þjálfun og geta nú betur brugðist við kynbundnu ofbeldi og hatursglæpum í garð hinsegin fólks.
FO herferð UN Women á Íslandi árið 2022 styður við hinsegin verkefni UN Women.

