Tvö ár frá upphafi átakanna í Súdan 

Heim / Fréttir / Tvö ár frá upphafi átakanna í Súdan 
Malka, móðir á flótta, heldur hér á eins árs gamalli dóttur sinni Sahar, sem þjáist af alvarlegri vannæringu. Þær eru hér fyrir utan hús sitt í Elhoury, þar sem fjöldi fólks á flótta í Gedaref fylki er samankomið. Mynd tekin í nóvember 2024: UNICEF/UNI689368/Ahmed Mohamdeen Elfatih

Tvö ár eru liðin frá upphafi átakanna í Súdan sem hrundu af stað einni verstu mannúðarkrísu heims. Milljónir eru á barmi hungursneyðar og kynbundið ofbeldi hefur stóraukist. Fólk hefur takmarkað aðgengi að læknisþjónustu, menntun og tækifærum til tekjuöflunar. Tólf milljón einstaklingar hafa þurft að flýja heimili sín og eru á vergangi, bæði innan og utan Súdan. Konur eru þar í miklum meirihluta.  

Þegar átökin brutust út í Khartoum flúðu Ruweda og systkini hennar án föður síns. Það er heilt ár síðan þau sáu hann síðast. Mynd tekin í Kassala fylki, mars 2024: UNICEF/UNI547360/Ahmed Mohamdeen Elfatih.

Á innan við tveimur árum hefur fjöldi þeirra sem eru útsett fyrir kynbundnu ofbeldi þrefaldast og er kominn yfir tólf milljónir. Þá eru vísbendingar um að kynferðislegu ofbeldi sé beitt markvisst gegn almennum borgurum. Þó eru fá sem treysta sér til að tilkynna brotin.  

Matarbirgðir eru af skornum skammti í Súdan. Hungursneyð hefur þegar greinst á fimm svæðum og 24,6 milljónir fólks stendur frammi fyrir bráðu fæðuóöryggi. Konur verða fyrir meiri áhrifum en karlar. Það er vegna samfélagslegra gilda og matarvenja, takmarkaðs fjármagns og skorts á félagslegum stuðningi.

Tíðni mæðradauða margfaldast 

Áttatíu prósent sjúkrahúsa á átakasvæðum eru óstarfhæf, með þeim afleiðingum að tíðni mæðradauða hefur margfaldast frá upphafi átakanna. Áttatíu prósent kvenna á flótta hafa ekki aðgang að hreinu neysluvatni. Ástæðan er bæði kostnaður og þær löngu vegalengdir sem konur þurfa að fara, oft um hættuleg svæði, til að sækja vatn.  

Þrátt fyrir þessar áskoranir hafa konur tekið að sér hlutverk viðbragðsaðila og leiðtoga og krafist þess að þær taki fullan þátt í formlegum og óformlegum friðarviðræðum í landinu.   

„Konur í Súdan þurfa að þola grófustu gerð ofbeldis – einkum kynferðisofbeldi. Á meðan eru þær kerfisbundið útilokaðar frá öllum stigum friðaruppbyggingar,“ sagði Anna Mutavati, svæðisstjóri UN Women í Austur- og Suður-Afríku. „Þessi útilokun er viðvarandi. Sannfærandi vísbendingar gefa þó til kynna að aðkoma þeirra [kvennanna] að mótun pólitíska landslagsins í Súdan gæti skipt sköpum. Styrkur þeirra er ótrúlegur, en þær geta ekki og ættu ekki að þurfa að vera einar um að finna leið út úr þessari krísu. Við hvetjum alla hagsmunaaðila – ríkisstjórnir, styrktaraðila, alþjóðasamfélagið – til að bregðast við með afgerandi hætti: binda enda á átökin, magna upp raddir kvenna þegar kemur að friðaruppbyggingu og koma á réttlæti. Súdanskar konur eiga ekki bara skilið að lifa af, þær eiga skilið þá reisn sem felst í að endurreisa og dafna.“ 

Aðkoma kvenna að friðarviðræðum og uppbyggingu er lykilatriði 

UN Women að störfum í Súdan.

Undanfarin tvö ár hefur UN Women átt í samstarfi við meira en 60 kvenrekin samtök til að ná til yfir 15.000 kvenna á sumum af þeim svæðum sem hafa orðið verst úti í Súdan. Þannig hafa samtökin séð fyrir nauðsynjavörum, mikilvægri þjónustu og færniþjálfun. Í gegnum áætlanir sem studdar eru af Women’s Peace and Humanitarian Fund (WPHF) hafa konur á flótta fengið aðgang að öruggu skjóli, geðheilbrigðisþjónustu og lögfræðiaðstoð. Þar að auki hafa þær fengið aðgang að lykilrýmum, innlendum sem alþjóðlegum, til að láta rödd sína heyrast. Þrátt fyrir það eru þarfirnar miklar og meiri fjármögnun skiptir sköpum til að auka stuðning. 

UN Women leggur áherslu á mikilvægi þess að koma á friði, uppræta tafarlaust kynbundið ofbeldi í allri sinni mynd og að gerendur verði látnir sæta ábyrgð. Kvennasamtök á staðnum verða að fá nægilegt fjármagn til að vernda og styrkja samfélög sín. Þá verða raddir kvenna að vera í fyrirrúmi í öllum friðarviðræðum. Með því að vinna saman og tryggja beina aðkomu kvenna í uppbyggingarferlinu, getur Súdan farið að hlúa að sér og tekið stefnuna í átt að réttlátari og stöðugri framtíð. 

OCHA og UNHCR gáfu út sameiginlega skýrslu í febrúar síðastliðnum. Skýrslan tekur saman þarfir og viðbragðsáætlanir á svæðinu fyrir árið 2025. Skýrsluna má lesa hér.

Þú getur lagt þitt af mörkum

Mikilvægt er að tryggja að konur og stúlkur í Súdan hljóti þá þjónustu og aðstoð sem þær þurfa nauðsynlega á að halda. Þú getur stutt við konur og stúlkur í Súdan með því að:

Related Posts