
Miklir þurrkar á Horni Afríku hafa framkallað mikla fólksflutninga og neyð.
Áætlað er að um 15 milljónir einstaklinga búi við sáran sult í Eþíópíu, Kenía og Sómalíu sökum þeirra mestu þurrka sem sést hafa á svæðinu í fjörtíu ár. Aðstæður hafa þvingað fjölda fólks til að flytja sig um set í leit að fæðu og haglendi handa bústofni sínum. Tíðni kynbundins ofbeldis og þvingaðra barnahjónabanda hefur aukist vegna sárafátæktar og matarskorts.
Búist er við áframhaldandi þurrkatíð og uppskerubresti í löndunum þremur, fjórða árið í röð.
Sameinuðu þjóðirnar segja stöðu mála grafalvarlega og lýsa yfir neyðarástandi.
Áætlað er að um 15 milljónir einstaklinga búi við alvarlegt fæðuóöryggi og vannæringu. Einna verst er ástandið í Sómalíu þar sem sum héruð eru á barmi hungursneyðar.
Stúlkur detta úr námi
Ástandið hefur gríðarlega neikvæð áhrif á líf kvenna og barna og eykur líkur á kynbundnu ofbeldi, mansali og á brottfalli barna úr námi. Þá eykst tíðni kynfæralimlestina stúlkna og þvingaðra barnahjónabanda á krepputímum. Fjölskyldur gifta burt barnungar stúlkur til að létta á útgjöldum fjölskyldunnar og mögulega verða sér úti um peninga fyrir nauðsynjum. Þá eru stúlkur líklegri til að verða teknar úr skóla en drengir.
UN Women hefur þungar áhyggjur af stöðu mála, enda hafa miklar framfarir átt sér stað á svæðinu, þ.m.t. í Eþíópíu hvað varðar aukinn jöfnuð. 95% allra eþíópískra barna var skráð í grunnskóla árið 2015 og tíðni mæðra- og ungbarnadauða hafði hríðfallið með bættri heilbrigðis- og fæðingaþjónustu á dreifbýlum svæðum. Neyðin sem nú ríkir ógnar þessum framförum.
Auka hættu á mæðra- og ungbarnadauða
Þurrkar og skortur á vatni hafa einnig neikvæð áhrif á heilsu barna og barnshafandi kvenna. Lélegt hreinlæti eykur líkur á niðurgangi, sem getur verið stórhættulegur börnum, og eykur sýkingarhættu hjá fæðandi konum og nýburum. Tíðni mæðra- og ungbarnadauða á svæðinu hefur stóraukist síðan þurrkatíðin skall á.
Sundra fjölskyldum og samfélögum
Víða hafa karlar neyðst til að yfirgefa heimili sín og fjölskyldur í leit að vatnsbólum og bithögum. Konur, aldraðir og börn verða eftir í þorpunum og reyna að draga fram lífið þrátt fyrir þurrkatíð. Heimili án karlmanna eru sérstaklega berskjölduð fyrir ofbeldi, árásum glæpahópa og búa við meiri fátækt. Uppþornuð vatnsból neyða konur og stúlkur jafnframt til að ganga lengri vegalendir í brennandi hita eftir neysluvatni. Ferðalagið gerir þær útsettari fyrir ofbeldi og mansali þar sem þær eru oft einar á ferð á ötryggum svæðum.

