Sóknarfæri fyrirtækja í Kynslóð jafnréttis

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Sóknarfæri fyrirtækja í Kynslóð jafnréttis

UN Women á Íslandi ásamt Lopa Banerjee og Hönnu Birnu.

Á dögunum átti starfsfólk, stjórn og ungmennaráð UN Women á Íslandi fund með Lopa Banerjee og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur með áherslu á sóknarfæra fyrirtækja í jafnréttismálum. Þær leiða stærsta  jafnréttisátak UN Women til næstu fimm ára – Kynslóð Jafnréttis.

Lopa Banerjee, leiðir borgara- og samfélagssvið UN Women (e. Chief of the Civil Society Section at UN Women) og hefur verið útnefnd framkvæmdastýra og talskona átaks UN Women,  Kynslóð jafnréttis. Hún ræddi hvaða tækifæri felist í þátttöku í Kynslóð jafnréttis átaki UN Women fyrir grasrótarhreyfingar, kvennahreyfingar, stofnanir og ekki síst fyrirtæki. Hanna Birna Kristjánsdóttir, sérlegur ráðgjafi UN Women við átakið, ræddi fjölbreytta aðkomu fyrirtækja að átakinu.

Hvað felst í Kynslóð jafnréttis?

Um ræðir stærsta jafnréttisátak sem UN Women hefur ráðist í og er það unnið í samstarfi við frönsk og mexíkósk stjórnvöld. Meginmarkmið átaksins er að vinna að úrbótum á þeim sviðum þar sem hallar mest á konur og stúlkur og varir átakið til fimm ára.
Unnið er á sex málefnasviðum og stýrt af aðgerðabandalögum (e. Action Coalitions) hvert og eitt aðgerðabandalag hefur þróað markmið til næstu fimm ára.

Aðgerðabandalögin eru:
1. Aðgerðabandalag gegn kynbundnu ofbeldi (e. Gender-based Violence)
2. Aðgerðabandalag um efnahagsleg réttindi og réttlæti (e. Economic justice and rights)
3. Aðgerðabandalag um líkamlegt sjálfræði og kyn- og frjósemisréttindi (SRHR) (e. Bodily autonomy and sexual and reproductive health and rights)
4. Aðgerðabandalag um feminískar aðgerðir í þágu loftslagsréttlætis (e. Feminist action for climate justice)
5. Aðgerðabandalag um tækni og nýsköpun í þágu jafnrétti kynja (e. Technology and innovation for Gender Equality)
6. Aðgerðabandalag um feminískar hreyfingar og forystu (e. Feminist movements and leadership)

Íslensk stjórnvöld voru valin til að veita aðgerðabandalagi um kynbundið ofbeldi (e. Action Coalition on Gender based Violence) forystu ásamt Bretlandi, Úrúgvæ, Kenía, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni, UN Women, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Ford Foundation (góðgerðarsjóður) og völdum alþjóðasamtökum kvennahreyfingarinnar.

Í þágu Kynslóðar jafnréttis hefur UN Women á Íslandi skuldbundið sig til að auka samstarfstækifæri við fyrirtæki á Íslandi. Þannig getum við UN Women á Íslandi ásamt fyrirtækjum búið til jákvæð margföldunaráhrif, hér heima og erlendis. Fyrirtæki sem ganga til samstarfs við UN Women á Íslandi verða þátttakendur í þessu mikilvæga alþjóðlega átaki og leggja þar með lóð sín á vogarskálarnar að jafnrétti raungerist og að við náum heimsmarkmiðunum.

Þess má geta að tvær starfskonur UN Women á Íslandi, þær Stella Samúelsdóttir og Marta Goðadóttir sitja í Stýrihópi stjórnvalda um aðgerðabandalag gegn kynbundnu ofbeldi.

Related Posts
kursanali, kyrgistan