FO bolurinn 2021 kominn í sölu

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / FO bolurinn 2021 kominn í sölu

Í dag hefjum við sölu á glænýjum FO bol UN Women á Íslandi. Allur ágóði FO bolarins rennur til UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu.

Konur og stúlkur í Mið-Afríku lýðveldinu er sérstaklega berskjaldaðar fyrir ofbeldi en á hverri klukkustund er kona eða stúlka í Mið-Afríkulýðveldinu fyrir beitt kynferðisofbeldi. Gjarnan er talað um Mið-Afríkulýðveldið sem gleymda ríkið.

FO bolur 2021Konur í Mið-Afríkulýðveldinu eru á meðal fátækustu íbúa landsins og að auki ómenntaðar og ólæsar að mestu. Óstöðugleiki, fátækt og menntunarskortur er mikill og þörf fyrir neyðaraðstoð er mikil og hefur verið viðvarandu undanfarna áratugi. Fyrir vikið er staða kvenna og stúlkna sérstaklega slæm. En UN Women gleymir ekki og er á staðnum.

FO bolurinn er hvítur á lit, síðerma úr veglegri bómull. Aftan á bolnum er mynd eftir Önnu Maggý ljósmyndara þar sem merking FO er sett fram í orðabókaskilgreiningu.

Bolurinn kostar 9.900 krónur og fæst á unwomen.is og í verslunum Vodafone í takmörkuðu upplagi.

FO bolurinn fæst í stærðum: S M L XL 2XL 3XL.

Með því að kaupa FO bolinn veitir þú gleymdu konunum í Mið-Afríkulýðveldinu von og neyðaraðstoð. Hér getur þú lesið um ástandið í Mið-Afríkulýðveldinu.

Með því að kaupa FO bolinn veitir þú konum í Mið-Afríku Lýðveldinu neyðaraðstoð og von

Related Posts
Konur í dreifbýli