Reykjavíkurmaraþonið hefur verið dýrmæt innspýting í fjáröflun UN Women á Íslandi undanfarin ár, en fjöldi fólks hefur veitt ómetanlegan styrk til verkefna UN Women með því að safna áheitum og hlaupa í nafni kvenna og stúlkna um allan heim.
Því miður fellur maraþonið niður í ár. Neyð kvenna vegna COVID-19 er hins vegar enn til staðar og fer vaxandi með hverjum deginum. Um leið og ríki heimsins glíma við alvarlegar efnahagslegar afleiðingar Covid-19 faraldursins eru fjármunir til kvennasamtaka skornir niður sem og aðgengi kvenna að heilbrigðisþjónustu. Í kreppu eru stúlkur líklegri til að hætta í skóla og verða þvingaðar ungar í hjónaband, auk þess sem staða kvenna og stúlkna í neyð og í flóttamannabúðum versnar til muna.
UN Women er til staðar fyrir konur um allan heim og mætir þörfum þeirra með ólíkum hætti, til dæmis með því að:
dreifa sóttvarnarpökkum til kvenna í flóttamannabúðum, svo sem í Jórdaníu og Bangladess, og fræða þær um smitvarnir- opna sérstakt kvennaathvarf í Addis Ababa, Eþíópíu, fyrir þolendur heimilisofbeldis meðan á sóttkví stendur
- móta verkferla í Indónesíu sem tryggja öryggi kvenna og barna sem þurfa að dvelja í sóttvarnahúsum
- koma á fót fjarnámskeiðum í Suður-Afríku sem veita konum leiðsögn í því hvernig megi nálgast brúarlán fyrir fyrirtæki sín.
- veita konum í Líbanon neyðarlán, tryggja þeim mat og sæmdarsett með helstu nauðsynjum í kjölfar sprengingarinnar á hafnarsvæði Beirút
- leiða samstarf kvennasamtaka um viðbragðsáætlanir í tengslum við COVID-19 og undirbúning á Gaza-svæðinu og í Palestínu
- dreifa hrísgrjónum, ræktuðum af kvenbændum í Senegal, til fjölskyldna í neyð og styðja í senn starfsemi kvenna á svæðinu

