
Nauðsynlegt er að tryggja að neyðaraðstoð berist konum í kjölfar jarðskjálftans. Mynd/UN Women
Jarðskjálfti sem mældist um 6 að stærð reið yfir austurhluta Afganistan skömmu eftir miðnætti þann 1. september og olli gríðarlegu manntjóni og skemmdum. Afganskar konur og stúlkur eru í hópi þeirra er verða fyrir mestum áhrifum vegna náttúruhamfaranna.
UN Women í Afganistan er á vettvangi og starfar með öðrum félagasamtökum við að veita neyðaraðstoð.
UN Women hvetur viðbragðsaðila, innlenda sem alþjóðlega, að gæta að því að konur og stúlkur gleymist ekki í viðbragðsaðgerðum – hvort heldur sé í björgunarstarfi eða þegar kemur að neyðarskýlum og vernd.
Þegar jarðskjálfti reið yfir Herat, í vesturhluta Afganistan, árið 2023, voru sex af hverjum tíu sem létust í hamförunum konur. Tveir þriðju þeirra er slösuðust í hamförunum voru konur.
Susan Ferguson, sérstakur fulltrúi UN Women í Afganistan, ítrekar nauðsyn þess að konur séu í hópi viðbragðsaðila í kjölfar jarðskjálftans.
„Konur og stúlkur munu enn og aftur bera hitann og þungann af þessum hamförum. Við verðum að tryggja að þörfum þeirra sé mætt þegar neyðaraðstoð er veitt og uppbygging hefst,“ sagði Ferguson í yfirlýsingu sem birtist á unwomen.org.
„Þetta felur meðal annars í sér stuðning við kvenkyns mannúðarstarfsfólk – án þeirra eru líkur á að konur og stúlkur hljóti ekki þá neyðaraðstoð eða upplýsingar sem þær þurfa nauðsynlega á að halda.“
Enn vantar fjármagn ef alþjóðastofnanir eiga að geta veitt lífsnauðsynlega neyðaraðstoð til kvenna og stúlkna. Vöntun er á neyðarskýlum, teppum, pottum til matseldar, sæmdarsettum, lyfjum – sem mikill skortur er á – drykkjarvatni og matvælum.


