fbpx

Ljóð í glugga Aurum í Bankastræti

Heim / Fréttir / Ljóð í glugga Aurum í Bankastræti

Skartgripaverslunin Aurum er eitt þeirra fyritækja sem lagt hefur UN Women lið í Fiðrildavikunni og erum við þeim ævinlega þakklát.konur_05


Glöggir vegfarendur hafa kannski tekið eftir skjá sem stendur í glugga verslunarinnar og birtir ljóð sem samið var fyrir UN Women. Skjárinn mun standa í glugganum á meðan Fiðrildavikunni stendur og munu vegfarendur geta kíkt á ljóðið jafnt nótt sem nýtan dag.

Hvetjum við áhugasama til að leggja leið sína í Aurum. Einnig má benda á að verslunin hefur til sölu hina geysivinsælu UN Women poka og nú fer hver að verða síðastur að næla sér í einn slíkan.

Áhugasamir geta horft á myndbandið hér:

https://unwomen.is/index.php/video/myndboend-landsnefndar-un-women-a-islandi

Related Posts