Líkami okkar, þeirra vígvöllur

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Líkami okkar, þeirra vígvöllur

Christina LambVið hjá UN Women á Íslandi bjóðum upp á einstakan viðburð með Christinu Lamb, fréttastjóra erlendra frétta hjá The Sunday Times og margverðlaunaðs rithöfundar.
Tilefni viðburðarins er nýjasta bók Lamb, Our Bodies, Their Battlefield, á íslensku, Líkami okkar, þeirra vígvöllur. Viðburðurinn fer fram á ensku í Veröld – húsi Vigdísar, fimmtudaginn 14. október á milli 16.30-18.00.

Skrá mig á viðburð

Á viðburðinum ræðir Lamb inntak bókar sinnar Líkami okkar, þeirra vígvöllur. Bókin er gríðarlega mikilvæg heimild um sértæk áhrif stríðs á konur, beitingu kynferðisofbeldis og nauðgana sem vopn í stríðsátökum og afleiðingar þeirra á líf kvenna og samfélaga þeirra.

Að loknu erindi Lamb fara fram pallborðsumræður þar sem eftirfarandi sérfræðingar taka þátt:

  • Salvator Nkurunziza, framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu
  • Erna Huld Ibrahimsdóttir, þýðandi, túlkur og kynjafræðingur.
  • Íris Björg Kristjánsdóttir, sérfræðingur í friði og öryggis- og mannúðarmálum hjá svæðisskrifstofu UN Women í Evrópu og Mið-Asíu

Umræðustjóri er fjölmiðlakonan Fanney Birna Jónsdóttir. Þátttakendur ræða meðal annars hvort nauðgunum sé beitt markvisst í hernaði, hvers vegna það sé svo öflugt vopn í stríði og afleiðingar þess á líf kvenna og samfélaga þeirra.

Alþjóðasamfélagið getur ekki lengur litið undan

Líkami okkar, þeirra vígvöllurChristina Lamb hefur starfað sem fréttaritari í meira en þrjá áratugi og hefur fyrst og fremst flutt fréttir af átakasvæðum fyrir The Sunday Times. Líkami okkar, þeirra vígvöllur er níunda bók Lamb, en hún er jafnframt meðhöfundur bókarinnar I am Malala.

Lamb skrásetur meðal annars sögur jasída kvenna sem gerðar voru að kynlífsþrælum vígamanna íslamska ríkisins, þolenda Boko Haram og Róhingjakvenna sem beittar voru hrottalegu ofbeldi af mýjanmarska hernum. Með því að skrásetja þessar sögur vill hún tryggja að alþjóðasamfélagið geti ekki lengur litið undan og látið sem hann viti ekki af því ofbeldi sem konur eru beittar um allan heim. Þrátt fyrir allar þessar hræðilegu sögur hefur enginn verið sakfelldur fyrir þann stríðsglæp sem nauðgun er.

Um bókina:  https://uglautgafa.is/collections/fraedirit/products/likami-okkar-theirra-vigvollur-br-small-i-christina-lamb-i-small-p

Heimsíða Lambhttp://christinalamb.net/

Málþing UN Women á Íslandi fer fram í Veröld – hús Vigdísar, kl. 16.30-18.00.

Öll velkomin og aðgangur ókeypis.

Related Posts
Indverskar stúlkur, aþjóðadagur stúlkubarnsinsKonur í dreifbýli