fbpx

Jólaglögg UNIFEM 18. desember

Heim / Fréttir / Jólaglögg UNIFEM 18. desember

img11Árlegt jólaglögg UNIFEM á Íslandi verður haldð í samstarfi við Nikita laugardaginn 18. desember næstkomandi í verslun Nikita á Laugavegi 56.

Að því tilefni langar okkur að bjóða gestum og gangandi að kíkja við hjá okkur milli 16-18 og fá sér jólaglögg og piparkökur í boði UNIFEM.

Einnig verða til sölu hunangsristaðar möndlur og afmælisdagatölin okkar sem eru frábær jólagjöf fyrir þá sem eiga allt.

Allur ágóði rennur beint til UNIFEM.

Söngkonan Elín Ey ætlar að taka nokkur lög fyrir okkur ásamt hljómsveitinni Of Monsters and Men og lofum við frábærri jólastemmningu.

Hlökkum til að sjá alla í jólaskapi!

Related Posts