Jarðskjálftinn eykur enn á neyð kvenna í Afganistan

Heim / Fréttir / Jarðskjálftinn eykur enn á neyð kvenna í Afganistan

Fulltrúi UN Women heimsækir konur á hamfarasvæðinu í austur Afganistan. Mikill jarðskjálfti reið yfir Paktika hérað þann 22. júní.

Fulltrúi UN Women í Afganistan heimsótti þorpin Mir Sahib og Khanadin í Paktika héraði í Afganistan sem varð hvað verst úti í jarðskjálftanum sem reið yfir austurhluta landsins miðvikudaginn 22. júní.

Jarðskjálftinn mældist 5,9 að stærð og var gríðarlega mannskæður. 235 létust í skjálftanum, þar með talið 134 börn, og um 600 til viðbótar slösuðust.

Fulltrúar fleiri stofnana Sameinuðu þjóðanna voru einnig með í heimsókninni til Mir Sahib og Khandadin, þar á meðal fulltrúar UNICEF, WHO, UNHCR og WFP.

Mikil neyð í kjölfar jarðskjálftans

Gríðarlega skemmdir urðu á mannvirkjum sem og samfélagslegum innviðum í jarðskjálftanum. Meira en þúsund heimili og tveir skólar eyðilögðust.

Mikið ríður á að veita fólki á hamfarasvæðinu neyðaraðstoð, húsaskjól og tryggja þeim aftur aðgang að hreinu neysluvatni. Þá þarf að lagfæra vegi til og frá svæðinu svo koma megi vistum til fólks.

Verður að tryggja aðstoð til kvenna

Fulltrúi UN Women hlustar á frásagnir fólks á hamfarasvæðinu. Mikilvægt er að tryggja að þörfum kvenna og stúlkna sé mætt. UN Women/Sayed Habib Bidel

Alison Davidian, fulltrúi UN Women í Afganistan, segir jarðskjálftan torvelda aðstoð til kvenna enn frekar, en erfitt hefur reynst að ná til kvenna og stúlkna eftir valdatöku talíbana í ágúst í fyrra.

„Jarðskjálftinn hefur ólík áhrif á konur og stúlkur. Ferðafrelsi þeirra er þegar mjög takmarkað og atvinnutækifæri þeirra einnig. Þess vegna eiga þær erfiðara um vik með að nálgast mataraðstoð, heilbrigðisþjónustu og komast í öruggt skjól.“

Byrjað er að greina þörfina á hamfarasvæðinu og segir Alison að mikilvægt sé að konur leiði þá vinnu svo þarfir kvenna og stúlkna gleymist ekki þegar mannúðaraðstoð er veitt.

„Þetta er eina leiðin til að ná til kvenna og stúlkna og uppfylla sértækar þarfir þeirra,“ segir hún.

Meðal þess sem UN Women í Afganistan er að gera, er að:

Veita beina neyðaraðstoð á hamfarasvæðinu til kvenna og stúlkna.

Tryggja viðveru kvenkyns heilbrigðisstarfsfólks á svæðinu.

Framkvæma reglulegar þarfagreiningar og styðja við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna svo kynjasjónarmið sé tekið til greina í öllu mannúðarstarfi á svæðinu.

Veita beinan stuðning til kvenkyns aktívista og stuðla að þátttöku þeirra í viðbragðsáætlunum og uppbyggingu.

362 þúsund þurfa neyðaraðstoð

Sameinuðu þjóðirnar hafa sett af stað neyðarkall- og áætlun til að bregðast við ástandinu. Búist er við því að veita 362.000 einstaklingum neyðaraðstoð á næstu þremur mánuðum.

„Góðvild alþjóðasamfélagsins í garð Afganistan á þessu róstursama ári hefur verið mikil. Nú standa íbúar Mir Sahib og Khanadin frammi fyrir enn einu neyðarástandinu og því þörf fyrir áframhaldandi stuðning og góðvild alþjóðasamfélagsins,“ Dr. Ramiz Alakbarov, sérstakur fulltrúi framkvæmdastjóra Sþ í mannúðarmálum í Afganistan.

 

Þú getur stutt við konur og stúlkur í Afganistan með því að gerast Ljósberi.

Related Posts
Kona, Malaví, landbúnaðurAlison Davidian, UN Women Afganistan