
Íslensk auglýsing er í hópi þrjátíu sem valdar hafa verið í úrslit í samkeppni Sameinuðu þjóðanna í Evrópu um bestu auglýsinguna um mikilvægi þess að afnema ofbeldi gegn konum.
Alls bárust rúmlega tvö þúsund og sjö hundruð auglýsingar frá 40 löndum. Höfundur auglýsingarinnar er Elsa Nielsen, grafískur hönnuður á Ennemm auglýsingastofunni.
Dómnefnd undir forystu franska auglýsingamannsins Jacques Séguela velur sigurvegara úr hópi þrjátíu efstu auglýsinganna sem eru frá fimmtán löndum og verða úrslit tilkynnt í október.
Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Brussel stendur fyrir keppninni ásamt UN Women og með stuðningi ýmissa stórblaða í Evrópu, þar á meðal Fréttablaðsins og vísis.is á Íslandi.
„Ég vildi fyrst og fremst vera með í keppninni til að auka vitund sem flestra um ofbeldi gegn konum en einnig var þetta áhugaverð áskorun. Mér finnst alltaf jafn hræðilegt að lesa staðreyndirnar varðandi þessi umfangsmiklu mannréttindarbrot sem eiga sér stað út um allan heim. Ég vona að ég hafi náð til sem flestra með framlagi mínu,“ segir Elsa Nielsen hönnuður myndarinnar.
Úrslitin verða gerð kunn í október og óskar UN Women á Íslandi Elsu innilega til hamingju með árangurinn!