HIV smitaðar mæður í Úkraínu í óbærilegri stöðu

Heim / Fréttir / HIV smitaðar mæður í Úkraínu í óbærilegri stöðu
Fæðingadeild, Úkraína, stríð

Bráðabirgða fæðingardeild í kjallara húss í Úkraínu.

HIV smitaðar mæður í Úkraínu standa sumar frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun að velja á milli þess að horfa á ungbörn sín svöng eða gefa þeim brjóst og eiga þá á hættu að smita börnin af HIV veirunni.

Meira en 700 sjúkrastofnanir og heilsugæslur í Úkraínu hafa orðið skotmörk rússneska hersins frá upphafi stríðsin í febrúar á þessu ári. Þá hefur fjöldi heilbrigðisstarfsfólks slasast eða látist í árásunum eða verið hrakið á flótta.

Erfitt hefur verið fyrir mæður að nálgast þurrmjólk handa ungbörnum sínum síðan stríðið skall á og undanfarið hefur andretróveirulyf, sem meðhöndlar HIV, verið ófáanlegt víða. Þetta kemur fram í fréttamiðlinum The Guardian. HIV smitaðar mæður sem ekki hafa aðgang að lyfjum eru því í þeirri stöðu að þurfa að gefa ungbörnum brjóstamjólk að drekka og eiga á hættu að smita börn sín í gegnum móðurmjólkina.

Gjörbreytt starfsumhverfi

UN Women hefur stutt við félagasamtök í Úkraínu sem þjónusta m.a. konur með HIV, heimilislausar konur (margar sem höfðu flúið átökin á Krímskaga árið 2014), konur sem neyta ávanabindandi lyfja og konur í kynlífsiðnaði og vændi.

Club Eney er dæmi um samtök sem hafa hlotið fjárstuðning frá UN Women. Samtökin hafa þurft að bregðast hratt við svo hægt væri að aðlaga starfsemina að gjörbreyttum aðstæðum eftir að stríðið braust út. Áður höfðu samtökin þurft að bregðast við breyttu landslagi sökum COVID-19 heimsfaraldursins og finna nýjar leiðir til að nálgast þjónustuþega.

Vilja ekki styðja við jaðarsettar konur

„Fjármagn til okkar var takmarkað fyrir, en hvarf nánast þegar átökin hófust. Almenningur vill ekki styðja við konur í vændi, konur sem neyta eiturlyfja eða konur með HIV. Þess vegna þurftum við nauðsynlega á alþjóðlegum fjárstuðningi að halda,“ sagði formaður Club Eney, Vielta Parkhomenko.

Það er gríðarlega mikilvægt að jaðarsettir samfélagshópar gleymist ekki á tímum átaka. UN Women hefur frá upphafi unnið náið með grasrótarsamtökum í hverju landi þar sem UN Women starfar. Kvenrekin grasrótarsamtök búa yfir staðbundinni þekkingu, lausnum og grunnstoðum sem UN Women styrkir með fjármagni, leiðsögn og búnaði.

Taktu þátt í að styðja við konur í Úkraínu með kaupum á Táknrænni jólagjöf

Related Posts
Zahra Mesbah frá Afganistan, Ljósaganga 2022Afganistan, Móðir og barn, betla, kuldi. snjór, 2021