Fréttatilkynning: Fyrstu ríkisreknu kvennaathvörfin í Haítí opnuð

Heim / Fréttir / Fréttatilkynning: Fyrstu ríkisreknu kvennaathvörfin í Haítí opnuð

Fyrstu ríkisreknu kvennaathvörfin í Haítí opnuðu nýverið. Athvörfin veita þolendum þjónustu en eru um leið áminning um þær hættur sem konur og stúlkur í Haítí búa við. Marie Goretti Nduwayo, fulltrúi UN Women í Haíti, segir að glæpasamtök noti kynferðislegt ofbeldi í auknum mæli sem tól til að ógna og stýra samfélögum.

Stofnanir SÞ staðfestu 1.863 tilfelli kynferðisofbeldis árið 2025. Þolendur eru 1.668 konur, 187 stúlkur, tveir karlmenn og sex drengir. Þetta er aukning um 163 prósent á milli ára. Sé litið til tíðni kynbundins ofbeldis í Haítí á fyrstu þremur mánuðum þessa árs, má sjá að kynferðislegt ofbeldi er um 70 prósent allra tilkynninga. Einnig hafa borist tilkynningar um að gerendur taki upp ofbeldið á myndband og noti það til þess að kúga eða niðurlægja þolendur áfram.

Ofbeldi er tengist glæpasamtökum einskorðaðist áður við höfuðborgina Port au Prince, en hefur nú breiðst um allt land og þvingað um 1,46 milljónir einstaklinga frá heimilum sínum.
Konur og stúlkur í flóttamannabúðum eru einkar berskjaldaðar gegn ofbeldi. Skýrsla frá UN Women sýndi að kynbundið ofbeldi þrifist í öllum 22 búðum sem kannaðar voru. Fæstar búðirnar eru með næga lýsingu og salernin eru hvorki kynjaskipt né þannig að hægt sé að læsa þeim. Slíkar aðstæður ógna enn frekar heilsu og lífi kvenna og stúlkna sem þar búa.

„Sértæk þjónusta við þolendur er einnig mjög takmörkuð, þar með talið sálrænn stuðningur og lagaleg ráðgjöf, sem eru að mestu óaðgengileg. Andlegu áhrifin eru svo gríðarleg og konur hafa tjáð mér að þær kannist ekki við eigið líf lengur. Afleiðingar ofbeldisins fylgja þeim við hvert fótmál, jafnvel þegar þær sofa. Minningar þeirra eru um heimilismissi, um byssumenn sem elta þær inn í skóga, minningar um fjölskyldumeðlimi og vini sem hafa verið myrt fyrir framan þær,” sagði Marie Goretti Nduwayo á blaðamannafundi í Palais des Nations í Genf í síðustu viku.

 

Óttast um öryggi sitt

„Mæður lýsa því fyrir mér hvernig þær ræktuðu ávexti og grænmeti áður, ráku lítil fyrirtæki og öfluðu sér tekna sem gátu framfleytt fjölskyldum þeirra. Í dag eru þær beittar fjárkúgunum við ólögleg tollhlið sem rekin eru af glæpasamtökum. Þeim er rænt og þær beittar kynferðislegu ofbeldi. Konur og stúlkur óttast stöðugt um öryggi sitt og geta þar af leiðandi ekki tekið þátt í daglegu lífi.“

Á sama tíma, að sögn Goretti Nduwayo, hefur álag á konur aukist til muna. Gögn sýna að um 80 prósent kvenna í flóttamannabúðum í Haítí eru atvinnulausar. „Heilbrigðiskerfið er að hruni komið og hið sama má segja um menntakerfi landsins og aðra samfélagslega innviði. Um 1.600 skólar hafa neyðst til að loka. Um 40 prósent heilbrigðisstofnana í Port-au-Prince eru óstarfhæfar.”

Þrátt fyrir þetta taka konur í auknum mæli þátt í að veita mannúðar- og neyðaraðstoð til samborgara sinna. Sem dæmi hefur þátttaka þeirra í öryggisráðum flóttamannabúða aukist umtalsvert á síðustu tveimur árum. Árið 2024 var þátttaka kvenna um 2 prósent en árið 2025 var hún orðin 40 prósent.

Þá styðja kvenrekin félagasamtök við þolendur ofbeldis, veita fjárstuðning til fjölskyldna og dreifa mannúðaraðstoð. Þau styrkja viðnámsþrótt samfélaga og öryggi þeirra.

 

Seigla ekki nóg heldur þurfa stuðning alþjóðasamfélagsins

UN Women styður við störf þessara samtaka og vinnur einnig náið með stjórnvöldum svo hægt sé að veita þolendum lífsnauðsynlega þjónustu.

Opnun kvennaathvarfsins, sem leidd er af Ráðuneyti kvenréttinda og -velferðar (e. Ministry of Women’s Welfare and Women’s Rights), með stuðningi UN Women, er mikilvægur liður í þjónustu við þolendur. En neyðin fer vaxandi samhliða skertum alþjóðlegum fjárstuðningi til Haítí.

Konur og stúlkur þurfa nauðsynlega á öryggi að halda, þær þurfa mat og pening, heilbrigðisþjónustu og menntun. Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við til að tryggja þeim vernd. Seigla þeirra getur ekki verið eina viðbragðið við hörmungunum sem þær standa frammi fyrir daglega.

 

Hægt er að lesa yfirlýsinguna hér.

Related Posts