NÝJUSTU FRÉTTIR

Tilskipun nr 18 mismunar konum enn frekar
Tilskipun númer 18, sem talíbanastjórnin í Afganistan hefur gefið út, grefur enn frekar undan réttindum og öryggi kvenna og stúlkna í landinu, segir í yfirlýsingu frá Susan Ferguson, sérstökum fulltrúa UN Women í Afganistan. Tilskipun númer 18, sem gefin var út þann 14. maí síðastliðinn, takmarkar enn frekar rétt kvenna og stúlkna til að sækja […]

Vörum við svikapóstum og smáskilaboðum í nafni UN Women á Íslandi
UN Women á Íslandi hafa borist tilkynningar um tölvupóst og smáskilaboð þar sem fólk er ýmist beðið um aðstoð við kaup á vörum eða beðið um að leiðrétta kortafærslu. Nafn stjórnarformanns UN Women á Íslandi hefur verið notað sem sendandi tölvupóstanna í nafni samtakanna. Við vekjum athygli á því að skilaboðin eru ekki frá UN […]

FO-bolurinn 2025 styður við frjálsa fjölmiðlun í Afganistan
FO-bolurinn 2025, hannaður af Helgu Lilju Magnúsdóttur, studdi við verkefni UN Women í Afganistan. Í lok ársins 2025 sendi UN Women á Íslandi tæpar 4,8 milljónir til UN Women í Afganistan. Fjármagnið frá Íslandi hefur m.a. stutt við konur í fjölmiðlun, sem kallast vel á við efni FO-átaksins sem fólst í því að hampa röddum […]