Í hverjum mánuði fara nærri tveir milljarðar kvenna og stúlkna á blæðingar. Á tímum stríðsátaka og náttúruhamfara vegna loftslagsbreytinga, allt frá átökunum á Gaza til eyðileggingarinnar af völdum fellibylsins Remal í Asíu, bregðast stofnanir Sameinuðu þjóðanna við eins fljótt og hægt er til að veita neyðaraðstoð þar sem við á. Þar á meðal eru sæmdarsett.
En hvað nákvæmlega eru sæmdarsett? Hér á eftir eru fimm staðreyndir um sæmdarsett, sem settar voru fram í tilefni alþjóðlegs dags tíðaheilbrigðis, einnig þekkts sem alþjóðlegi túrdagurinn.

Teymið í UN Women í Jórdaníu setur saman 15,000 sæmdarsett fyrir konur og stúlkur á Gaza. UN Women / Michele Pasquale

Mynd: Kona í Rafah tekur við sæmdarsetti. UN Women / Areej Ashhab
1. Hvað er sæmdarsett?
UN Women og aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna bregðast við eins fljótt og hægt er til að ná til fólks í neyð. Hluti af því sem þessi hjálparsamtök gera er að dreifa nauðsynjum til kvenna og stúlkna til að mæta grunnþörfum þeirra og svo þær megi viðhalda heilsu, hreinlæti og reisn. Margar af slíkum nauðsynjavörum eru innifaldar í pökkum sem kallast sæmdarsett.
Sæmdarsett samanstendur af hlutum sem konur og stúlkur þurfa til að viðhalda hreinlæti, virðingu og reisn á tímum hamfara, stríðs og annarrar krísu.
Þessir hlutir eru yfirleitt í bakpoka eða fötu sem auðvelt er að bera með sér.
2. Hvað er í pökkunum?
Sæmdarsettin eru mismunandi eftir því hvar þeim er úthlutað en grunnsettið inniheldur tíu mikilvæga hluti. Einnig er hægt að sérsníða sæmdarsettin með 39 mismunandi hlutum. Í sumum tilfellum geta þau til dæmis innifalið höfuðklút. Í öðrum tilfellum geta þau innihaldið barnaföt, þurrmjólk og bleyjur líkt og sæmdarsettin gerðu sem UN Women dreifði á Gaza nýlega og konur þar óskuðu sérstaklega eftir.
Almenna reglan er sú að sæmdarsettin innihalda nærbuxnainnlegg, baðsápu, nokkur pör af nærfötum, þvottaefni, dömubindi, vasaljós, tannkrem, tannbursta og greiðu.

Mynd: Innihald sæmdarsetts frá UN Women í Jórdaníu /UNW Jordan
3. Hvers vegna er stuðningur við konur og stúlkur á blæðingum mikilvægur?
Allar konur og stúlkur sem eru á blæðingum þurfa ákveðna hluti til að geta sinnt sínum daglegu störfum á meðan á blæðingum stendur. En á krísutímum skerðist aðgangur að grunnvörum og þjónustu verulega, svo að Sameinuðu þjóðirnar reyna að mæta þeim þörfum.
Þannig hefur neyðaraðstoð Sameinuðu þjóðanna brugðist við og komið nauðsynjavörum til kvenna og stúlkna á stríðssvæðum, hamfarasvæðum og í flóttamannabúðum.
Að veita nauðsynlegan stuðning við konur og stúlkur sem eru á blæðingum getur haft jákvæð áhrif á heilsu þeirra, dregið úr kynbundnu ofbeldi og fleira. Lestu útskýringu UNFPA á fimm lykilástæðunum fyrir því hér.
Lærðu meira um það hvernig stofnun Sameinuðu þjóðanna hjálpar konum og stúlkum á stríðshrjáðu Gaza-svæðinu í myndbandinu hér fyrir neðan:
4. Hvernig nálgast þú sæmdarsett?
Í sumum tilfellum eru birgðir af sæmdarsettum, ásamt öðrum neyðargögnum, geymdar í vörugeymslum svo auðvelt er að nálgast þau á stuttum tíma. Í öðrum tilfellum eru sæmdarsettin og aðrir neyðarpakkar afhentir í samstarfi við önnur hjálparsamtök, líkt og UN Women gerði í samstarfi við Rauða hálfmánann í Egyptalandi og Jordan Hashemite Charity Organization (JHCO) í Jórdaníu til að koma neyðargögnum inn á Gaza.
Sameinuðu þjóðirnar rukka aldrei þjónustuþega fyrir mannúðaraðstoð. Sæmdarsettin, ásamt annarri neyðaraðstoð, eru því ókeypis.
Sjáðu hvernig UNFPA náði til kvenna og stúlkna sem urðu fyrir áhrifum af mannskæðu jarðskjálftunum árið 2023 í Tyrklandi og Sýrlandi hér fyrir neðan:
5. Bindum enda á tíðafátækt og fordóma þegar kemur að blæðingum
Meginstef Sameinuðu þjóðanna þegar kemur að því að koma til móts við þarfir kvenna og stúlkna á blæðingum, er að auka vitund fólks um leið og að stemma stigu við því sem kallað er tíðafátækt.
UN Women skilgreinir tíðafátækt sem „vangetu til að hafa efni á- og aðgang að tíða- og hreinlætisvörum, hreinlætisaðstöðu, menntun og vitund til að stuðla að tíðaheilbrigði“. Það stafar af fordómum, háum kostnaði við tíðavörur og skorti á vatni og hreinlætisaðstöðu.
Eitt af verkefnum Sameinuðu þjóðanna er að vinna með samfélögum um allan heim, allt frá Gambíu til Nepal, um að uppræta fordóma í kringum blæðingar kvenna, en það er ein forsenda þess að konur og stúlkur geti búið við tíðaheilbrigði.
Skoðaðu skýringarmyndbandið frá UNFPA Nepal um sæmdarsett hér fyrir neðan:

