Bóluefni virkar ekki á ofbeldi gegn konum

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Bóluefni virkar ekki á ofbeldi gegn konum

Yngri konur eiga í mestri hættu á að vera beittar ofbeldi, segir í samantekt Alþjóða heilbrigðistofnunarinnar sem unnin var m.a. í samstarfi við UN Women. Samantektin sýnir að ofbeldi gegn konum er hræðilega útbreitt.

„Ofbeldi gegn konum og stúlkum er skelfilega útbreitt og ógnvænlegt er hvað stúlkur er ungar þegar ofbeldið gegn þeim hefst,“ sýnir samantekt Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar.

Yfir ævi þeirra er ein af hverjum þremur konum, um 736 milljónir kvenna og stúlkna, beitt líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi af hendi náins fjölskyldumeðlims eða beittar kynferðisofbeldi af hendi ókunnugra. Þessar tölur hafa haldist óbreyttar undanfarinn áratug.

Ofbeldið hefst snemma: 1 af hverjum 4 ungra kvenna (15-24 ára) sem hafa verið í sambandi hafa upplifað ofbeldi af hendi maka um 25 ára aldur.

„Ofbeldi gegn konum og stúlkum er landlægt í öllum löndum og menningarsvæðum og veldur milljónum kvenna og fjölskyldum þeirra skaða og hefur aukist vegna heimsfaraldurs COVID-19,“ segir Tedros Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar.

„En ólíkt COVID-19 er ekki hægt að stöðva ofbeldi gegn konum með bóluefni. Við getum aðeins barist við það með djúpstæðumog sameinuðum kröftum stjórnvalda, samfélaga og hjá okkur sjálfum, hverju og einu til að breyta skaðlegum viðhorfum, bæta aðgengi tækifærum og þjónustu við konur og stelpur og bæta heilbrigð samskipti.“

Ójöfnuður ýtir undir ofbeldi gegn konum

Samkvæmt samantektinni er ofbeldi gegn konum og stúlkum útbreiddara í lág- og miðtekjulöndum. Áætlað er að 37 prósent kvenna sem búa í efnaminnstu ríkjunum hafi orðið fyrir líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi í nánum samböndum í lífi sínu, í sumum þessara landa önnur hver kona.

Ofbeldi gegn konum á aldrinum 15-49 ára af hendi maka mælist hæst í Eyjaálfu, Suður-Asíu og Afríku sunnan Sahara eða á bilinu 33 – 51 prósent. Lægsta hlutfallið er í Evrópu 16 – 23%, Mið-Asíu 18%, Austur-Asíu 20% og Suðaustur-Asíu 21%.

Samkvæmt skýrslunni eiga yngri konur í mestri hættu á að vera beittar ofbeldi af hendi maka. Meðal þeirra sem hafa verið í sambandi höfðu ungar konur á aldrinum 15 til 24 ára oftast verið beittar ofbeldi í nánu sambandi á síðustu 12 mánuðum, eða 16% þeirra.

Nánari upplýsingar hér 

Related Posts